© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Al-Skeini o.fl. gegn Bretlandi - Yfirdeild
Dómur frá 7. júlí 2011
Mál nr. 55721/07
1. gr. Skylda til að virða mannréttindi
2. gr. Réttur til lífs
Lögsaga. Hernámssvæði. Mannsbani vegna valdbeitingar. Rannsóknarskylda.
1. Málsatvik
Kærendur eru íraskir ríkisborgarar. Þeir eru ættingjar sex manna sem létust af völdum ýmissa ótengdra og ólíkra aðgerða breskra hermanna í suðurhluta Íraks þegar svæðið var hersetið af breskum hersveitum. Breskir dómstólar töldu að þeir hefðu ekki lögsögu í málunum. Eitt málanna var þó talið falla undir lögsögu þeirra, enda urðu atburðir í því á breskri herstöð í Írak. Breskur dómstóll dæmdi breska ríkið til að greiða skaðabætur í því máli.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur héldu því fram að ættingjar þeirra hefðu verið innan lögsögu Bretlands í skilningi 1. gr. sáttmálans þegar þeir létust vegna aðgerða breska hersins í Írak. Þeir töldu að ýmist hefði verið brotið gegn 2. og 3. gr. sáttmálans þar sem rannsóknir á atvikunum hefðu verið ófullnægjandi.
Niðurstaða
Um 1. gr.: Dómstóllinn taldi að þar sem kæran lyti að meðferð breskra hersveita á ríkisvaldi á landsvæði annars ríkis hefðu atvikin fallið undir lögsögu breska ríkisins. Dómstóllinn vísaði í þessu samhengi til þess að þar til írösk bráðabirgðastjórn tók við völdum í Írak hefði Bretland borið ábyrgð á öryggi suðurhluta landsins. Þar sem ættingjar kærenda hefðu látist vegna beitingar breskra hersveita á ríkisvaldi hefði breskum yfirvöldum borið að rannsaka atvikin.
Um 2. gr.: Dómstóllinn tók fram að skylda stjórnvalda til að rannsaka andlát gæti verið háð aðstæðum hverju sinni og rakti ýmis atriði sem hefðu takmarkað möguleika breskra yfirvalda til að rannsaka andlát ættingja kærenda. Dómstóllinn taldi aftur á móti að rannsóknirnar hefðu þurft að vera sjálfstæðar gagnvart yfirmönnum hermannanna sem voru sakaðir um að hafa brotið af sér. Ljóst þótti að þetta hefði ekki verið raunin í hluta tilvikanna og að rannsóknir þeirra hefðu takmarkast við að taka skýrslur af hermönnunum sem í hlut áttu. Meðal annars tiltók dómstóllinn ákveðnar rannsóknaraðgerðir sem hefði þurft að framkvæma. Af þessum sökum taldi dómstóllinn að brotið hefði verið gegn 2. gr. sáttmálans í fimm tilvikum af sex.
Fimm kærendum voru hverjum um sig dæmdar 17 þúsund evrur í miskabætur og samtals 50 þúsund evrur í málskostnað. Tveir dómarar skiluðu sérálitum þar sem komist var að sömu niðurstöðu og meirihlutinn.
Full & Egal Universal Law Academy