© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Antwi o.fl. gegn Noregi
Dómur 14. febrúar 2012
Mál nr. 26940/10
8.gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Útlendingar. Brottvísun. Fjölskyldulíf.
1. Málsatvik
Kærendur eru Henry Antwi, ríkisborgari Ghana, fæddur árið 1975, og eiginkona hans og dóttir, Vivian Awere Osei og Nadia Ryan Pinto, fæddar árin 1979 og 2001. Öll eru þau búsett í Osló. Antwi kom til Þýskalands árið 1998 og varð sér úti um falsað vegabréf sem gaf til kynna að hann væri portúgalskur ríkisborgari, fæddur 1969. Í Þýskalandi kynntist hann tilvonandi eiginkonu sinni, sem hafði flust 17 ára gömul frá Ghana til föður síns, bræðra og systra í Noregi. Flutti Antwi til Noregs til að vera í samvistum við hana. Dóttir þeirra fæddist árið 2001 í Noregi og þau gengu í hjónaband í Ghana árið 2005.
Árið 2006 ákváðu norsk innflytjendayfirvöld að vísa Antwi úr landi og banna honum endurkomu til landsins í fimm ár, eftir að upp komst að hann hafði framvísað fölsuðum skilríkum með beiðni sinni um atvinnu- og dvalarleyfi í Noregi.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur töldu að ákvörðun innflytjendayfirvalda í Noregi frá árinu 2006 að vísa Antwi úr landi og meina honum að snúa aftur til Noregs í fimm ár bryti gegn rétti þeirra til fjölskyldulífs samkvæmt 8. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn benti á að Antwi hefði fengið útgefið atvinnu- og dvalarleyfi í Noregi á grundvelli falsaðs vegabréfs og fæðingarvottorðs sem hann hafði fengið útgefið árið 1998 eftir að hafa villt á sér heimildir og þóst vera annar maður. Dvöl hans í Noregi hefði því alla tíð verið ólögleg. Dómstóllinn taldi norsk yfirvöld hvorki hafa beitt gerræði né á annan hátt farið út fyrir það svigrúm til mats sem þau hefðu á þessu sviði. Hefðu þau gætt sanngjarns jafnvægis milli almannahagsmuna af því að viðhafa virkt innflytjendaeftirlit og þeirrar þarfar kærenda að Antwi gæti verið um kyrrt í Noregi.
Niðurstaða dómstólsins var því sú að brottvísun Antwi frá Noregi með fimm ára endurkomubanni bryti ekki gegn 8. gr. sáttmálans.
Full & Egal Universal Law Academy