© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Babar Ahmad o.fl. gegn Bretlandi
Dómur frá 10. apríl 2012
Mál nr. 24027/07, 11949/08, 36742/08, 66911/09 og 67354/09
3. gr. Bann við pyndingum
Framsal fanga. Hryðjuverkastarfsemi. Meðferð í fangelsi.
1. Málsatvik
Kærendur eru sex menn sem sakaðir hafa verið um þátttöku í alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Þeir voru handteknir í Bretlandi og bíða þess að verða framseldir til Bandaríkjanna.
Kærendur voru á árunum frá 1999 til 2006 ákærðir fyrir þátttöku í hryðjuverkum sem framin voru víða um heim. Bandarísk yfirvöld fóru fram á það við bresk yfirvöld að kærendur yrðu framseldir til Bandaríkjanna. Kærendur mótmæltu framsali fyrir stjórnvöldum og dómstólum í Bretlandi en án árangurs.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur kærðu niðurstöður breskra dómstóla um framsal þeirra til Bandaríkjanna. Héldu þeir því fram að af ýmsum ástæðum yrði brotið gegn 3. gr. sáttmálans yrðu þeir framseldir þangað. Mannréttindadómstóllinn vísaði frá stærstum hluta kærunnar um að meðferð bandarískra stjórnvalda yrði andstæð ákvæðum Mannréttindasáttmálans. Þannig var ekki talin raunveruleg hætta á að fjórir kærenda yrðu flokkaðir sem óvinveittir bardagamenn, þ.e.a.s. óvinir Bandaríkjanna sem ekki njóta réttinda samkvæmt Genfar-sáttmálunum. Þá var heldur ekki talin hætta á að sömu kærendur yrðu sendir frá Bandaríkjunum til annarra ríkja þar sem mannréttindi þeirra yrðu brotin. Þá var ekki fallist á að meðferð á málum þeirra fyrir bandarískum alríkisdómstólum þýddi að þeir yrðu sviptir möguleika á réttlátri málsmeðferð.
Dómstóllinn aflaði frekari gagna í kjölfar ákvörðunar sinnar um að kærurnar væru að hluta tækar til efnismeðferðar. Þær málsástæður sem eftir stóðu lutu einkum að aðstæðum í öryggisfangelsi því í Bandaríkjunum sem kærendur yrðu vistaðir í og lengd þeirra fangelsisdóma sem þeir áttu yfir höfði sér.
Niðurstaða
Um aðstæður í bandaríska fangelsinu sem líklegt var að kærendur yrðu sendir í komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að þær væru ekki svo slæmar að þær brytu gegn 3. gr. sáttmálans. Dómstóllinn tók sérstaklega fram að þótt kærendur yrðu settir í varðhald væru til staðar fullnægjandi úrræði í bandarísku réttarkerfi til að láta skera úr um réttindi fanga. Ef kærendur yrðu sakfelldir fyrir þá glæpi sem þeir væru sakaðir um væri réttlætanlegt að líta á þá sem alvarlega hættu gagnvart samfélaginu og takmarka möguleika þeirra til að hafa samskipti við umheiminn. Engu að síður bentu gögn til þess að fangar í viðkomandi fangelsi nytu ýmissa möguleika til að fylgjast með fjölmiðlum, stunda tómstundir, eiga samskipti við umheiminn og iðka trú sína. Virtist sem fangar í fangelsinu nytu ríkari réttinda að þessu leyti en fangar gerðu í mörgum fangelsum í Evrópu. Þá gætu kærendur átt kost á flutning í fangelsi þar sem ekki væru jafn miklar skorður á svigrúmi fanga til framangreinds. Þar sem þrír kærendur höfðu haldið því fram að þeir þyrftu sérstaka aðstoð vegna geðrænna vandamála var vísað til þess að umrædd vandamál virtust ekki hafa aftrað kærendum sérstaklega í bresku öryggisfangelsi auk þess sem fyrir lá að föngum með geðræn vandamál var veitt aðstoð í bandaríska fangelsinu. Fyrir lá að einn kærenda yrði ekki vistaður í umræddu fangelsi, þar sem hann átti við fötlun að stríða sem leiddi til þess að hann var ekki hæfur til að vera vistaður þar. Með vísan til þessa alls var talið að það bryti ekki gegn 3. gr. sáttmálans þótt fimm kærenda yrðu framseldir til Bandaríkjanna. Að því er varðaði einn kærenda og geðheilsu hans taldi dómstóllinn að ástæða væri til að afla frekari gagna um hvernig bresk og bandarísk yfirvöld hygðust meðhöndla hans mál og var máli hans því frestað.
Um lengd þeirra dóma sem kærendur gátu búist við í Bandaríkjunum tók dómstóllinn fram að þeir ættu allir lífstíðarfangelsi yfir höfði sér. Með hliðsjón af þeim brotum sem kærendur voru sakaðir um var talið að dómarnir myndu ekki brjóta í bága við meðalhóf eða brjóta gegn 3. gr. sáttmálans.
Full & Egal Universal Law Academy