© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Biblíumiðstöð Chuvashlýðveldisins gegn Rússlandi
Dómur frá 12. júní 2014
Mál nr. 33203/08
9. gr. Hugsana-, samvisku og trúfrelsi
Trúfélög. Skólarekstur. Starfsleyfi.
1. Málsatvik
Kærandi er Hvítasunnusöfnuður sem var skráð sem trúfélag í nóvember 1991. Árið 1996 stofnaði það biblíuskóla og sunnudagaskóla. Í október 2007 leysti Hæstiréttur Rússlands trúfélagið upp án nokkurrar viðvörunar á þeim grundvelli að það hafi rekið menntastofnun án leyfis og brotið gegn heilbrigðis- og hreinlætislöggjöfinni.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi byggði kæru sína á því að upplausn safnaðarins hafi brotið gegn trúfrelsi og þar með 9. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Upplausn safnaðarins var skerðing á réttindum kærenda en dómstóllinn tók til nánari meðferðar hvort sú skerðing gæti átt rétt á sér. Aðgerðin átti stoð í lögum og stefndi að því lögmæta markmiði að vernda heilsu fólks með lokun skóla sem ekki höfðu leyfi til reksturs og oft voru reknir við óheilsusamlegar aðstæður.
Kærandi hafði rekið skólann um 11 ára skeið óáreittur og árið 2002 hafði dómstóll í Rússlandi komist að þeirri niðurstöðu að sunnudagaskólar stæðu utan menntakerfis landsins og væri því ekki þörf á leyfi til þess að reka þá. Gat kærandi því ekki séð fyrir þá skýringu réttarins að leyfi þyrfti til reksturs sunnudagaskóla. Eins þótti nauðsynlegt að taka tillit til þess að Hæstiréttur hafði svo snúið ákvörðun sinni, hvað þetta varðar, við 9 mánuðum síðar í öðru máli.
Kærandi hafði því enga ástæðu til að ætla að um lögbrot væri að ræða. Einungis einum degi eftir að Hæstiréttur hafði úrskurðað að kærandi væri að brjóta lögin var ákveðið að leysa söfnuðinn upp. Ekki voru gefin tækifæri til að bæta aðstöðuna eða að verða sér úti um réttindin.
Dómstóllinn fékk ennfremur ekki séð að upplausn trúfélagsins hefði verið nauðsynleg til að ná því markmiði að biblíuskólinn og sunnudagaskólinn væru ekki starfræktir í leyfisleysi. Var þannig talið vegið að trúfrelsi meðlima kæranda og því um brot á 9. gr. sáttmálans að ræða.
Full & Egal Universal Law Academy