© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Delfi AS gegn Eistlandi
Dómur frá 10. október 2013
Mál nr. 64569/09
10. gr. Tjáningarfrelsi
Meiðyrðamál. Ábyrgð á athugasemdum á fréttavefsíðu.
1. Málsatvik
Kærandi, Delfi AS, er hlutafélag með heimilisfesti í Eistlandi og eigandi einnar stærstu fréttavefsíðu landsins. Í janúar 2006 birti kærandi grein á vefsíðu sinni um fyrirtæki í ferjurekstri. Greinin varðaði þá ákvörðun fyrirtækisins að breyta siglingaleið að tilteknum eyjum. Þessi ákvörðun leiddi til þess að ís brotnaði þar sem fyrir lá að annars hefði mátt útbúa ísvegi í náinni framtíð. Ísvegirnir veita möguleika á ódýrari og fljótari ferðaleið en ferjur og seinkaði gerð þeirra um nokkrar vikur sökum breytingarinnar á siglingaleiðinni. Undir greininni gátu lesendur nálgast athugasemdir annara lesenda og skilið slíkar athugasemdir eftir sjálfir. Margar athugasemdir sem birtust voru meiðandi eða ógnandi í garð eiganda ferjunnar.
Eigandi ferjunnar höfðaði mál gegn kæranda í apríl 2006 vegna þessara athugasemda og komst dómstóll að þeirri niðurstöðu að um meiðandi ummæli væri að ræða. Var kæranda gert að greiða eigandanum skaðabætur vegna þessa. Hæstiréttur Eistlands staðfesti þá niðurstöðu í júní 2009.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að eistneskir dómstólar hefðu gert hann ábyrgan fyrir athugasemdum lesenda sinna og að slíkt fæli í sér brot gegn 10. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn vísaði til þess að takmörkun á tjáningarfrelsi kæranda væri í samræmi við lög og stefndi að því lögmæta markmiði að vernda mannorð annarra. Hins vegar skipti mestu hvort takmörkunin uppfyllti kröfur meðalhófsreglunnar og hvort jafnvægi hefði verið náð á milli andstæðra hagsmuna. Við skoðun á því leit dómstóllinn til fjögurra grundvallaratriða.
Fyrst var litið til þeirra aðstæðna sem athugasemdirnar voru settar fram í. Bent var á að athugasemdirnar væru móðgandi, ógnandi og ærumeiðandi. Talið var að í ljósi efnis greinarinnar hefði kærandi mátt búast við athugasemdum af þessum toga og hefði hann því átt að sýna aukna varúð svo ekki kæmi til ábyrgðar. Í öðru lagi var litið til þeirra ráðstafana sem kærandi hafði gripið til í því skyni að koma í veg fyrir birtingu meiðandi ummæla. Vísað var til þess að fram kom á vefsíðunni að höfundar athugasemda bæru ábyrgð á þeim og að móðgandi eða ógnandi athugasemdir væru óheimilar. Þá eyddi vefsíðan sjálfkrafa athugasemdum sem hefðu að geyma tiltekin orð eða orðasambönd sem voru særandi eða meiðandi. Jafnframt var unnt að kvarta undan efni tiltekinna athugasemda með því að þrýsta á einn takka. Hins vegar vísaði dómstóllinn til þess að viðvaranir hefðu ekki komið í veg fyrir aragrúa særandi og ógnandi athugasemda og að ráðstafanir til að fjarlægja slíkar athugasemdir hefðu ekki virkað með nægilega skilvirkum hætti. Í þriðja lagi leit dómstóllinn til þess hvort höfundar athugasemda hefðu getað borið ábyrgð á þeim. Tekið var fram að eigandi ferjufyrirtækisins hefði fræðilega getað reynt að stefna viðkomandi höfundum frekar en kæranda vegna ummælanna. Hins vegar hefði verið afar erfitt að hafa upp á höfundum ummælanna í framkvæmd þar sem lesendur gátu ritað athugasemdir nafnlaust. Var því talið eðlilegt að leggja ábyrgð á kæranda, einkum í ljósi þess að hann naut aukinnar umferðar og auglýsingahagræðis sökum athugasemdanna. Í fjórða og síðasta lagi leit dómstóllinn til afleiðinga þess að kærandi bæri bótaábyrgð vegna athugasemdanna. Vísað var til þess að þær sektir sem kæranda var gert að greiða væru hóflegar, en þær numu 320 evrum. Sérstaklega var tekið fram að dómstólar hefðu ekki mælt fyrir um hvernig nýta bæri vefsíðuna til framtíðar litið í því skyni að vernda réttindi þriðju aðila, en slíkt kynni að hafa takmarkað tjáningarfrelsi kæranda.
Með hliðsjón af framangreindu komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að takmörkun á tjáningarfrelsi kæranda hefði verið réttlætanleg og að ekki væri um brot gegn 10. gr. sáttmálans að ræða.
Full & Egal Universal Law Academy