© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Dzemyuk gegn Úkraínu
Dómur frá 4. september 2014
Mál nr. 42488/02
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Skipulagsreglur. Áhrif mengunar á heimili. Fullnusta dóma.
1. Málsatvik
Kærandi bjó í þorpi í Úkraínu þar sem aðgangur að hreinu drykkjarvatni var takmarkaður og þurfti fjölskylda hans að reiða sig á að sækja vatn í brunn nálægt heimilinu. Árið 2000 ákváðu skipulagsyfirvöld að byggður yrði kirkjugarður á lóð sem stóð aðeins 40 m frá húsi kæranda. Kærandi kærði ákvörðunina og krafðist þess að ákvörðunin yrði ógilt og kirkjugarðinum lokað. Dómstóll dæmdi honum í vil árið 2003 og taldi að kirkjugarðurinn hefði verið staðsettur of nærri íbúabyggð og nálægum vatnsbólum og að staðsetning hans fæli í sér brot á lögum og reglugerðum. Dómstólinn ákvað að kirkjugarðinum skyldi lokað, en yfirvöld framfylgdu ekki fyrirmælum hans. Árið 2008 voru sýni tekin úr drykkjarvatni í brunni kæranda og sýndu þau hærra magn e-kóli gerla en leyfilegt var samkvæmt lögum.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi taldi að málsmeðferð yfirvalda í máli hans hefði falið í sér brot gegn 8. gr. sáttmálans um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu.
Niðurstaða
Dómstóllinn tók fram að 8. gr. sáttmálans ætti við í tilvikum þar sem skerðingar á réttindum manna beindust sérstaklega að heimili, fjölskyldu þeirra eða einkalífi og væri skilyrði að þessar takmarkanir teldust verulegar. Í þessu tilviki yrði að telja að sú mengun á drykkjarvatni sem staðsetning kirkjugarðsins hafði í för með sér og þau brot á lögum og reglugerðum um umhverfisvernd sem fólst í byggingu hans hafi falið í sér veruleg áhrif á lífsgæði fjölskyldu kæranda og því talist veruleg röskun á réttindum hans samkvæmt 8. gr. sáttmálans.
Þá tók dómstóllinn fram að ólögmæti ákvörðunar yfirvalda um að byggja kirkjugarðinn á þessum stað hafi komið ítrekað fram við meðferð málsins, bæði hjá heilbrigðisyfirvöldum og dómstólum. Þó hafi yfirvöld ekki fylgt eftir ákvörðunum dómstóla um að loka kirkjugarðinum og því teldust þau hafa brotið gegn réttindum kæranda um friðhelgi heimilis hans og fjölskyldu, enda hafi takmörkunin á réttindum hans ekki verið lögmæt. Dómstóllinn taldi því að um brot gegn 8. gr. sáttmálans væri að ræða.
Dómstóllinn dæmdi úkraínska ríkið til að greiða kæranda 6.000 evrur í miskabætur.
Full & Egal Universal Law Academy