© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Gas og Dubois gegn Frakklandi
Dómur frá 15. mars 2012
Mál nr. 25951/07
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
14. gr. Bann við mismunun
Ættleiðing. Samkynhneigðir. Réttarstaða sambúðarmaka.
1. Málsatvik
Kærendur, Valérie Gas og Nathalie Dubios, eru franskir ríkisborgarar. Þær eru fæddar 1961 og 1965 og hafa verið í sambúð frá árinu 1989. Árið 2000 ól Nathalie Dubios dóttur sem var getin með tæknifrjóvgun með gjafasæði frá nafnlausum sæðisgjafa í Belgíu. Í samræmi við belgísk lög hafði barnið engin lagaleg tengsl við sæðisgjafann, kynföður sinn. Dóttir Nathalie Dubios hefur ætíð búið hjá kærendum. Samkynhneigðir geta ekki gengið í hjónaband í Frakklandi en árið 2002 skráðu kærendur sig í sambúð. Árið 2006 óskaði Valérie Gas eftir því að fá að ættleiða dóttur Nathalie Dubios en franskir dómstólar töldu að ekki væru lagaskilyrði fyrir slíkri ættleiðingu. Var vísað til þess að samkvæmt frönskum lögum myndi ættleiðingin hafa þau réttaráhrif að Nathalie Dubios missti réttindi sín og skyldur sem móðir barnsins. Ástæðan var sú að samkvæmt frönskum lögum hafði ættleiðing þau áhrif að kynforeldrar misstu réttindi og skyldur sínar sem foreldrar. Í lögunum var undanþáguákvæði sem kvað á um að maki kynforeldris sem ættleiddi barn þess síðarnefnda myndi deila réttindum og skyldum með kynforeldrinu. Þetta ákvæði var hins vegar ekki talið eiga við um sambúðaraðila í skráðri sambúð.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur reistu kröfu sína á því að brotið hefði verið gegn 14. gr., sbr. 8. gr. sáttmálans þar sem Valérie Gas hefði verið meinað að ættleiða barn sambúðarmaka síns.
Niðurstaða
Dómstóllinn taldi að aðstæður kærenda væru ekki sambærilegar aðstæðum hjóna. Hann vísaði til þess að sáttmálinn legði ekki þá skyldu á herðar aðildarríkjunum að veita samkynhneigðum möguleika á að ganga í hjónaband. Kysi aðildarríki að veita samkynhneigðum pörum lagalega viðurkenningu hefði það vítt svigrúm til mats á því hvaða réttaráhrif slík viðurkenning hefði. Dómstóllinn vísaði einnig til þess að sú regla sem kom í veg fyrir ættleiðingu Valérie Gas ætti einnig við í þeim tilvikum þegar um væri að ræða einstaklinga af gagnstæðu kyni sem væru í sama sambúðarformi og kærendur. Með vísan til þessa var ekki talið að brotið hefði verið gegn 14. gr., sbr. 8. gr. sáttmálans.
Einn dómari skilaði séráliti.
Full & Egal Universal Law Academy