© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Gillberg gegn Svíþjóð
Dómur frá 2. nóvember 2010
Mál nr. 41723/06
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
10. gr. Tjáningarfrelsi
Skylda til að afhenda gögn. Rannsóknargögn í háskóla.
1. Málsatvik
Kærandi, Christopher Gillberg, er sænskur ríkisborgari, fæddur árið 1950. Hann er prófessor og fyrrverandi forseti barna- og þroskasálfræðideildar Háskólans í Gautaborg. Um nokkurra ára skeið hafði hann umsjón með rannsóknarverkefni um ofvirkni og athyglisbrest barna. Verkefnið fór fram á vegum Háskólans í Gautaborg á árunum 1977 til 1992. Foreldrar 141 barns á leikskólaaldri buðust til að taka þátt í rannsókninni. Foreldrum barnanna, og síðar börnunum sjálfum, var heitið trúnaði vegna þeirra upplýsinga sem látnar voru rannsakendum í té. Kærandi hélt því fram að siðanefnd háskólans hefði gert það að skilyrði þegar leyfi fékkst fyrir rannsókninni að einungis hann og starfsfólk hans hefði aðgang að rannsóknargögnunum. Hann hefði þess vegna heitið börnunum og foreldrum þeirra algjörum trúnaði og voru gögnin í vörslu hans.
Árið 2002 óskaði félagsfræðingur sem stundaði rannsóknir við annan háskóla í Svíþjóð eftir aðgangi að rannsóknargögnunum. Sama ár óskaði barnalæknir eftir aðgangi að rannsóknargögnunum. Báðum beiðnunum var hafnað af Háskólanum í Gautaborg. Báðir umsækjendur kærðu þær synjanir til stjórnsýsludómstóls. Niðurstaða dómstólsins var að félagsfræðingurinn og barnalæknirinn ættu rétt á að fá aðgang að rannsóknargögnunum enda ættu þeir lögvarða hagsmuni af því að fá að kynna sér þau auk þess sem þeim væri treystandi til að fara með trúnaðargögn. Háskólanum bæri að setja þeim skilyrði til að tryggja hagsmuni þeirra einstaklinga sem tóku þátt í rannsókninni. Setti háskólinn þau skilyrði að þeir gætu einungis skoðað gögnin hjá háskólanum sjálfum og óheimilt væri að fjölfalda þau.
Kærandi neitaði að afhenda háskólanum gögnin. Í því ljósi sá háskólinn sér ekki annað fært í byrjun árs 2004 en að neita um aðgang að gögnunum. Stjórnsýsludómstóll ógilti þá ákvörðun og mælti fyrir að háskólinn skyldi afhenda gögnin. Nokkrum dögum síðar eyddu samstarfsmenn kæranda rannsóknargögnunum. Í öll skiptin sem stjórnsýsludómstóll kvað upp dóm í málinu reyndi kærandi að skjóta málinu til æðri dómstóls en var það ókleift þar sem hann var ekki talinn vera aðili að málinu.
Í júní 2005 var kærandi dæmdur fyrir brot í starfi. Hann fékk skilorðsbundinn dóm og sekt sem samsvaraði 4.000 evrum. Varaforseti háskólans og aðrir starfsmenn skólans sem tóku þátt í því að eyða rannsóknargögnunum voru jafnframt dæmdir fyrir sömu sakir. Dómurinn var staðfestur í febrúar 2006 af áfrýjunardómstól. Hæstiréttur Svíþjóðar hafnaði því í apríl 2006 að taka mál kæranda til skoðunar.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að með refsidóminum hefði verið brotið gegn réttindum hans samkvæmt 8. og 10. gr. sáttmálans þar sem loforð hans til barna og foreldra sem tóku þátt í rannsókninni hefði verið forsenda þess að rannsóknin hefði farið fram.
Niðurstaða
Um 8. gr.: Dómstóllinn tók ekki afstöðu til þess hvort friðhelgi einkalífs kæranda hefði verið takmörkuð. Sænskum stjórnvöldum hefði borið að bregðast við þeirri ákvörðun kæranda að neita að afhenda rannsóknargögnin. Dómstóllinn taldi ekki sýnt fram á að jafn ríkur trúnaður hefði ríkt um gögnin og kærandi hélt fram og benti á mat sænskra dómstóla á því atriði. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn 8. gr. sáttmálans. Tveir dómarar skiluðu séráliti um þá niðurstöðu.
Um 10. gr.: Dómstóllinn tók fram að jákvætt frelsi kæranda til tjáningar samkvæmt 10. gr. sáttmálans hefði ekki verið takmarkað heldur réttur hans til neikvæðrar tjáningar, þ.e. rétturinn til að afhenda ekki tilteknar upplýsingar. Dómstóllinn féllst á að sumar starfsstéttir hefðu lögmæta hagsmuni af því að vernda upplýsingar sem þær fengju í starfi, t.d. í samskiptum við skjólstæðinga. Hins vegar hefði kærandi verið dæmdur fyrir brot í starfi fyrir að neita að afhenda gögn sem honum bar að afhenda lögum samkvæmt.
Af þessum sökum taldi dómstóllinn einróma að ekki hefði verið brotið gegn 10. gr. sáttmálans.
Full & Egal Universal Law Academy