© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Granos Organicos Nacionales S.A. gegn Þýskalandi
Dómur frá 22. mars 2012
Mál nr. 19508/07
6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi
14. gr. Bann við mismunun
Gjafsókn. Lögaðilar. Mismunandi meðferð á grundvelli þjóðernis.
1. Málsatvik
Kærandi, Granos Organicos Nacionales S.A., er perúskt fyrirtæki sem var skráð í Lima en er nú gjaldþrota. Kærandi flutti banana til Evrópu. Hann hafði gert samninga við tvö þýsk fyrirtæki um innflutninginn sem kváðu á um að leysa skyldi úr ágreiningi um efni þeirra fyrir þýskum dómstólum. Kærandi óskaði eftir gjafsókn í Þýskalandi til að láta reyna á rétt sinn gagnvart viðsemjendum sínum fyrir þýskum dómstólum. Beiðninni var hafnað þar sem heimild til gjafsóknar í þýskum lögum náði einungis til einstaklinga og lögaðila sem skráðir voru í ríkjum Evrópusambandsins og á Evrópska efnahagssvæðinu. Þýsk yfirvöld féllust því ekki á beiðni kæranda um gjafsókn.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi byggði á því að brotið hefði verið gegn 6. gr. sáttmálans einni sér en einnig gegn 6. gr., sbr. 14. gr. sáttmálans þar sem honum hefði verið synjað um gjafsókn og hefði því ekki getað látið reyna á mál sitt fyrir þýskum dómstólum, enda þótt lögaðilar sem skráðir væru í Evrópulöndum ættu kost á því að fá gjafsókn.
Niðurstaða
Dómstóllinn tók fram að á aðildarríkjunum hvíldi ekki sú skylda að bjóða upp á gjafsóknarúrræði til aðila hvers konar einkamála. Ekki væri samstaða meðal aðildarríkjanna um það hvort veita ætti lögaðilum möguleika á gjafsókn. Dómstóllinn féllst á þá röksemd þýskra yfirvalda að takmörkunin væri reist á sjónarmiðum um gagnkvæmni og að enginn hvati væri til staðar fyrir önnur ríki að veita þýskum fyrirtækjum gjafsóknarúrræði ef þýskum yfirvöldum bæri stjórnskipuleg skylda til að veita slíka aðstoð einhliða. Dómstólnum þótti ekki sýnt fram á að erlendir lögaðilar gætu átt rétt á gjafsókn fyrir dómstólum í Perú. Þá taldi dómstóllinn að meðalhófs hefði verið gætt við takmörkun réttinda kæranda. Ekki var því fallist á sjónarmið kæranda í málinu og var kröfum hans hafnað.
Full & Egal Universal Law Academy