© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
McCaughey and Hemsworth o.fl. gegn Bretlandi
Dómur frá 16. júlí 2013
Mál nr. 43098/09 og 58559/09
2. gr. Réttur til lífs
Valdbeiting á vegum hersins. Tafir á rannsókn mannsláta. Raunhæft réttarúrræði.
1. Málsatvik
Málið fjallaði um tvær kærur sem vörðuðu báðar dauða ættingja kærenda af völdum löggæsluyfirvalda í Norður-Írlandi. Kærendur í fyrra málinu eru írsku ríkisborgararnir Brigid McCaughey, Pat Grew og Letitia Quinn. Martin McCaughey, sonur Brigid McCaughey, og Desmond Grew, sonur Pat Grew og faðir Letitia Quinn, létust báðir í skotárás í október 2009 þegar sérsveit breska hersins gerði atlögu að þeim. Kærendur héldu því fram að sérsveitin hefði gengið lengra í valdbeitingu sinni en nauðsynlegt hefði verið og að ekki hefðu verið gerðar ráðstafanir til þess að draga úr hættu á dauða ættingja þeirra. Kærendur héldu því jafnframt fram að sú rannsókn á dauða mannanna, sem fór fram á vegum breska hersins, hefði ekki verið framkvæmd af óháðum aðila og verði óskilvirk. Því var ennfremur haldið fram að þau hefðu ekki haft raunhæf úrræði til að leita réttar síns vegna þessa.
Kærendur í seinna málinu eru írsku ríkisborgararnir, Collette Hemsworth og Michael Hemsworth. John Hemsworth, eiginmaður Collette Hemsworth og sonur Michael Hemsworth, lést af völdum áverka sem hann hlaut í aðgerðum lögreglu í Belfast í júlí 1997. Kærendur héldu því fram að áverkar hans stöfuðu af barsmíðum lögreglumanna sem voru að elta grunaða menn nálægt heimili hans. Í maí 2011 komst rannsóknarkviðdómur að þeirri niðurstöðu að líkur væru á því að áverkar sem John Hemsworth varð fyrir af völdum lögreglu hefðu leitt til dauða hans. Ákæra var ekki gefin út á hendur lögreglumönnunum og enginn var sóttur til saka.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur í báðum málunum töldu að brotið hefði verið gegn 2. gr., einni og sér og jafnframt með hliðsjón af 13. gr. sáttmálans. Einkum var byggt á því að John Hemsworth hefði látist vegna aðgerða lögreglu, að rannsóknir vegna beggja atvika hefðu verið ófullnægjandi og dregist úr hófi.
Niðurstaða
Dómstóllinn taldi stærstan hluta kæruefna ekki tækan til efnismeðferðar þar sem meðferð málanna væri ekki lokið hjá stjórnvöldum og/eða þar sem innlend réttarúrræði hefðu ekki verið tæmd. Hins vegar var talið að kvörtun vegna þess hve langan tíma rannsókn hefði tekið væri tæk til efnismeðferðar, en rannsókn í máli McCaughey hafði tekið 23 ár og rannsókn í máli Hemsworth 13 ár.
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að hin langa málsmeðferð og tafir á rannsókn málanna fælu í sér brot gegn þeirri rannsóknarskyldu sem fælist í 2. gr. sáttmálans. Tekið var fram að rannsóknir vegna aðgerða og ofbeldis af hálfu löggæsluyfirvalda á Norður-Írlandi hefðu lengi einkennst af löngum málsmeðferðartíma og að þetta væru víðfeðmt og alvarlegt vandamál. Vísað var til þess að samkvæmt 46. gr. sáttmálans bæri að grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að kröfur 2. gr. sáttmálans til málsmeðferðar væru virtar í þessum málum sem og öðrum sambærilegum málum.
Breska ríkinu var gert að greiða Collette og Michael Hemsworth 20.000 evrur í miskabætur og 11.000 evrur í málskostnað. Þá var breska ríkinu gert að greiða Brigid McCaughey, Pat Grew og Letitia Quinn 14.000 evrur í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy