© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.Jakóbski gegn Póllandi
Dómur frá 7. desember 2010
Mál nr. 18429/06
9. gr. Hugsana-, samvisku- og trúfrelsi
14. gr. Bann við mismunun
Fangar. Sérfæði vegna trúarskoðana.
1. Málsatvik
Kærandi, Janusz Jakóbski, er pólskur ríkisborgari, fæddur 1965. Árið 2003 var hann dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir nauðgun. Hann afplánar nú dóminn í Nowogród-fangelsinu í Póllandi.
Kærandi er búddatrúar og óskaði ítrekað eftir því að fá kjötlausar máltíðir í fangelsinu þar sem hann var vistaður í fjölda ára. Hann vildi fylgja ströngu mataræði Mahayana-búddista sem sneiða hjá neyslu hvers konar kjötmetis. Óskum hans var hafnað en þó fékk hann á tímabili mat sem innihélt ekki svínakjöt en hins vegar annars konar kjöt og fisk.
Í apríl 2006 kærði Jakóbski starfsmenn fangelsisins fyrir að færa sér mat sem innihélt kjöt þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hans um kjötlaust fæði. Hann benti á að hann hefði ekki getað neitað að borða matinn þar sem litið hefði verið á það sem hungurverkfall sem varðaði agaviðurlögum. Kæran náði ekki fram að ganga. Í kjölfarið sendi félag búddista í Póllandi bréf til fangelsisyfirvalda til stuðnings kröfu kæranda.
Kærandi fór í framhaldi af þessu fram á að saksóknari höfðaði mál gegn starfsmönnum fangelsisins þar sem þeir hefðu virt að vettugi trúarskoðanir hans. Saksóknari hafnaði kröfunni og staðfesti dómstóll síðar þá ákvörðun. Kærandi höfðaði mál gegn fangelsisyfirvöldum. Niðurstaða dómstóla varð að í ljósi aðstæðna og manneklu í mötuneytum fangelsa væri það tæknilega ómögulegt fyrir fangelsin að útvega hverjum og einum fanga mat í samræmi við trúarlegar venjur þeirra og aðrar sérþarfir.
Árið 2009 var kærandi fluttur í Nowogród-fangelsið þar sem óskum hans um kjötlaust fæði var einnig hafnað.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að ákvörðun fangelsisyfirvalda um að neita honum um kjötlaust fæði, í samræmi við trúarbrögð hans, bryti gegn réttindum hans samkvæmt 9. gr. sáttmálans. Kærandi byggði auk þess á 14. gr. sáttmálans þar sem aðrir trúarhópar innan fangelsisins fengju sérfæði í samræmi við reglur trúarbragða þeirra en það fól, að hans mati, í sér mismunun á grundvelli trúar.
Niðurstaða
Þrátt fyrir þau rök pólska ríkisins að neysla grænmetisfæðis gæti ekki talist ómissandi þáttur trúariðkunar og trúarbragða kæranda úrskurðaði dómstóllinn að sú ákvörðun fangelsisyfirvalda að neita kæranda um grænmetisfæði félli innan ramma 9. gr. sáttmálans. Líta mætti svo á að ákvörðun hans um að óska eftir grænmetisfæði byggðist á eða væri innblásin af trúarsannfæringu hans. Í fyrri málum hefði dómstóllinn þegar staðfest að ósk um tiltekið mataræði gæti talist til iðkunar trúarbragða.
Þótt dómstóllinn féllist á að ákvörðun um að gefa einum fanga kost á sérstöku mataræði gæti verið fjárhagsleg byrði fyrir fangelsisyfirvöld varð engu að síður að líta til þess hvort ríkið hefði vegið og metið þá mismunandi hagsmuni sem voru í húfi í málinu. Dómstóllinn áréttaði að kærandi hefði eingöngu beðið um fæði sem innihéldi ekki kjöt. Ekki hefði þurft að elda, útbúa og framreiða máltíðir hans á neinn sérstakan hátt auk þess sem hann fór ekki fram á neinar sérstakar matarafurðir. Dómstóllinn var því ekki sannfærður um að það að útvega kæranda grænmetisfæði hefði á nokkurn hátt raskað rekstri fangelsisins eða bitnað á gæðum matar annarra fanga. Auk þess benti dómstóllinn á álit ráðherranefndar Evrópuráðsins er laut að samevrópskum fangelsisreglum sem kvað á um að fangar ættu rétt á mataræði með tilliti til trúar þeirra.
Dómstóllinn komst einróma að þeirri niðurstöðu að yfirvöld hefðu ekki fundið ásættanlegan meðalveg í þessu tilliti á milli hagsmuna fangelsisyfirvalda og kæranda og hefðu þau þar með brotið gegn 9. gr. sáttmálans.
Í ljósi þessarar niðurstöðu taldi dómstóllinn ekki nauðsynlegt að skoða efnisatriði málsins sérstaklega út frá 14. gr. sáttmálans.
Á grundvelli 41. gr. sáttmálans var pólska ríkinu gert að greiða kæranda 3.000 evrur í miskabætur.
Full & Egal Universal Law Academy