© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Jelić gegn Króatíu
Dómur frá 12. júní 2014
Mál nr. 57856/11
2. gr. Réttur til lífs
Manndráp. Rannsókn. Jákvæðar skyldur stjórnvalda.
1. Málsatvik
Kærandi er króatískur ríkisborgari af serbneskum uppruna. Í nóvember 1991 var eiginmanni hennar rænt af heimili þeirra og fannst hann skömmu síðar látinn. Andlát hans var ekkert rannsakað í sjö ár uns árið 1999 er yfirvöld hófu að rannsaka morð á Serbum frá 1991 til 1995. Skömmu síðar gaf sig fram maður sem gaf upp nöfn nokkurra einstaklinga sem hann taldi eiga þátt í dauða fjölda Serba, þar með talið eiginmanns kæranda.
Árið 2013 var fyrrverandi yfirmaður lögreglunnar sakfelldur fyrir stríðsglæpi gegn almenningi fyrir morðin.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi byggði kæru sína á að með því að sakfella einungis yfirmanninn, þrátt fyrir að frekari upplýsingar lægju fyrir, væri Króatía að bregðast skyldum sínum til að veita lífi fólks þá réttarvernd sem 2. gr. sáttmálans felur í sér.
Niðurstaða
Dómstóllinn áréttaði að ýmsar tafir við rannsókn mála í kjölfar stofnunar Króatíu sem sjálfstæðs ríkis væru réttlætanlegar. Það þýddi þó ekki að ríki losni undan skyldum sínum skv. 2. gr. sáttmálans. Árið 2003 lágu fyrir upplýsingar sem hefðu getað leitt til sakfellingar þeirra er báru ábyrgð á dauða eiginmanns kæranda. Þá hafi vaknað skylda til rannsóknar. Þótt óljóst væri hvort vísbendingarnar hefðu leitt til sakfellingar hafi lögreglunni borið að rannsaka þær til hlítar. Þessu til leiðréttingar nægi ekki að sakfella einungis æðsta yfirmanninn. Ábyrgð yfirmanna á stríðsglæpum leysi ekki undirmennina undan sök og hafi lögreglunni borið að rannsaka ítarlega líklegustu sakborningana. Í ljósi þess að vitni hafði nafngreint hugsanlega sakborninga taldi dómstóllinn sig ekki geta komist að annarri niðurstöðu en að framkvæmd rannsóknar á morði á eiginmanns kæranda hafi falið í sér brot á 2. gr. sáttmálans.
Kæranda voru dæmdar 20.000 evrur í miskabætur.
Full & Egal Universal Law Academy