© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Johansson gegn Finnlandi
Dómur frá 6. september 2007
Mál nr. 10163/02
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Börn. Synjun um skráningu nafns.
Málsatvik
Kærendur, Mika og Jaana Johansson, eru finnskir ríkisborgarar sem eignuðust son 2. maí 1999. Þau nefndu soninn „Axl Mick“, en 8. júlí 1999 hafnaði finnska þjóðskráin því að skrá nafnið á grundvelli finnskra nafnalaga með vísan til þess að staðfesting nafnsins samræmdist ekki finnskum nafnvenjum. Kærendur báru ákvörðunina undir dómstóla sem staðfestu ákvörðun þjóðskrárinnar. Í niðurstöðu dómstóla var m.a. vísað til þess að heimildir laganna til að gera undanþágur varðandi nöfn sem ekki samrýmdust finnskum nafnvenjum, sem hægt væri að veita mönnum af erlendu þjóðerni, vegna fjölskyldutengsla eða af öðrum sérstökum ástæðum, ættu ekki við tilviki kærenda.
Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur héldu því fram að synjun finnskra stjórnvalda um að skrá fornafnið „Axl” bryti í bága við friðhelgi einkalífs og fjölskyldulífs samkvæmt 8. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn vísaði til fyrri dómaframkvæmdar sinnar um að heimilt væri að banna afkáraleg eða óviðeigandi nöfn með tilliti til hagsmuna barna. Í fyrirliggjandi máli væri hins vegar ekki um það að ræða að nafngift hefði verið bönnuð með vísan til hagsmuna barnsins. Dómstóllinn féllst á að það markmið að vernda tungumál og tilteknar nafnhefðir væri lögmætt markmið og að aðildarríkin hefðu talsvert svigrúm í þessum efnum. Hins vegar varð ekki séð að nafnið „Axl“ væri mjög frábrugðið ýmsum nöfnum í Finnlandi, t.d. „Alf“ og „Ulf“. Nafnið væri hvorki afkáralegt né óviðeigandi og vel hægt að bera það fram á finnsku. Þá var það talið mikilvægt að nafnið væri þegar að finna í finnsku þjóðskránni á einstaklingum sem væru fæddir í Finnlandi og finnskir ríkisborgarar. Að öllu þessu virtu var talið að hagsmunir kærenda ættu að vega þyngra en opinberir hagsmunir tengdir vernd tungumálsins og nafnvenja og að sanngjarns jafnvægis hefði ekki verið gætt af finnska ríkinu. Var því einróma talið að brotið hefði verið gegn réttindum kærenda samkvæmt 8. gr. sáttmálans.
Full & Egal Universal Law Academy