© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Koottummel gegn Austurríki
Dómur frá 10. desember 2009
Mál nr. 49616/06
6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi
Réttur til munnlegs málflutnings fyrir dómstól.
1. Málsatvik
Kærandi, Geethakumari Koottummel, er austurrískur ríkisborgari. Hún fæddist á Indlandi en býr í Lustenau í Austurríki þar sem hún rekur indverskan veitingastað. Hún sótti um atvinnuleyfi fyrir indverskan matreiðslumann sem hún vildi ráða til starfa á veitingastaðnum. Veitingastaðurinn byggðist á tiltekinni hugmyndafræði og var kokkurinn sérhæfður í matargerð sem byggðist á henni. Af þessum sökum var umsókn kæranda um atvinnuleyfið byggð á að matreiðslumaðurinn yrði svokallaður lykilstarfsmaður á staðnum en sérstakar reglur giltu um atvinnuleyfi slíkra starfsmanna.
Umsókn kæranda var hafnað sökum þess að matreiðslumaðurinn fullnægði ekki skilyrðum austurrískra laga um slíka starfsmenn. Kærandi fór fram á munnlegan málflutning um málið fyrir stjórnsýsludómstól. Hún hélt því fram að yfirvöld hefðu ekki metið gögn með fullnægjandi hætti né gefið nægjanlega góðan rökstuðning fyrir niðurstöðu sinni. Málsástæðum kæranda var hafnað. Ekki var fallist á að málflutningur í málinu yrði munnlegur þar sem ekki var talið að slíkt myndi skýra málið frekar fyrir dómnum.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að brotið hefði verið gegn 6. gr. sáttmálans með því að neita henni um munnlegan málflutning fyrir stjórnsýsludómstól.
Niðurstaða
Dómstóllinn tók fram að stjórnsýsludómstóllinn í máli kæranda hefði verið fyrsti og eini dómstóllinn sem fjallaði um mál hennar. Hún hefði þess vegna átt rétt á opinberri og munnlegri málsmeðferð nema að því undanskildu ef málið hefði einvörðungu varðað lagaleg eða mjög tæknileg álitaefni. Þar sem sú var ekki raunin í máli kæranda hefði stjórnsýsludómstólnum borið að hafa munnlegan málflutning um málið. Af þessum sökum hefði verið brotið gegn 1. mgr. 6. gr. sáttmálans.
Kæranda voru dæmdar 2.000 evrur í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy