© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Krupko o.fl. gegn Rússlandi
Dómur frá 26. júní 2014
Mál nr. 26587/07
5. gr. Réttur til frelsis og mannhelgi
9. gr. Hugsana-, samvisku og trúfrelsi
Trúfélög. Trúarleg samkoma. Handtaka. Frelsissvipting
1. Málsatvik
Kærendurnir fjórir eru allir vottar Jehóva sem tilheyra ýmsum söfnuðum í Moskvu. Þann 12. apríl 2006 voru 400 manns, þar með taldir kærendur, á leið til árlegrar trúarhátíðar. Lögreglan umkringdi þá bygginguna, sem leigð hafði verið af því tilefni, og meinaði þeim inngöngu. Fjórtán manns, þar með taldir kærendur, voru einangraðir frá hópnum og farið með þá á lögreglustöð þar sem þeim var haldið í rúmar þrjár klukkustundir.
Kærendur leituðu réttar síns fyrir innlendum dómstólum vegna þess að hátíðarhöldin voru trufluð og vegna handtökunnar. Endanlegur dómur þar var kveðinn upp í mars 2007 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að lögreglan hafi á lögmætan hátt stöðvað hátíðarhöldin þar sem þau fóru fram í húsnæði sem ekki var við hæfi samkvæmt lögum og reglum og að þrjár klukkustundir gætu ekki talist gæsluvarðhald.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kæran byggir á að stöðvun hátíðarhaldanna hafi brotið gegn trúfrelsi kærenda skv. 9. gr. sáttmálans og að gæsluvarðhald yfir kærendum hafi falið í sér frelsissviptingu og þannig brotið gegn 5. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Um 5. gr.: Þrátt fyrir að þrjár klukkustundir séu skammur tími þá var í aðgerðum lögreglu falin valdbeiting sem bar einkenni frelsissviptingar. Kærendur sýndu lögreglumönnunum skilríki, svöruðu spurningum þeirra og fóru að skipunum þeirra. Þeir voru ekki grunaðir um glæp né var mál höfðað gegn þeim. Lögreglustjórinn á stöðinni sem þeir voru vistaðir viðurkenndi við meðferð málsins í Rússlandi að þeir hefðu ekki verið grunaðir um neinn glæp. Voru því skilyrði handtöku ekki til staðar og niðurstaðan brot á 5. gr. sáttmálans.
Um 9. gr.: Stöðvun hátíðarhaldanna fól í sér skerðingu á trúfrelsi. Ekki var nauðsynlegt að taka afstöðu til þess hvort skerðingin ætti sér stoð í lögum þar sem ekki fékkst séð að hennar gerðist þörf í lýðræðissamfélagi. Dómstóllinn hefur ítrekað haldið því fram að þrátt fyrir að yfirvöldum hafi ekki verið tilkynnt um útifund gefi það lögreglu ekki rétt til að leysa upp fund að því gefnu að hann fari friðsamlega fram. Í þessu máli var um enn alvarlegra inngrip að ræða þar sem samkoman fór fram innandyra í samkomusal og ógnaði á enga hátt almannaöryggi. Við þessar kringumstæður getur inngrip vopnaðra lögreglumanna í friðsamleg hátíðarhöld, jafnvel þótt þau fram fari í leyfisleysi, ekki verið réttlætanleg með tilliti til almannaöryggis. Dómstóllinn úrskurðaði því að aðgerðir rússnesku lögreglunnar hafi falið í sér brot á 9. gr. sáttmálans.
Kærendum voru dæmdar 30.000 evrur í miskabætur í sameiningu.
Full & Egal Universal Law Academy