© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Kudrevičius o.fl. gegn Litháen
Dómur frá 26. nóvember 2013
Mál nr. 37553/05
11. gr. Funda- og félagafrelsi
Mótmælaaðgerðir. Refsing. Meðalhóf.
1. Málsatvik
Kærendur eru fimm litháenskir ríkisborgarar og starfa allir sem bændur í mismunandi héruðum innan Litháen. Þeir mótmæltu verðlækkunum á afurðum sínum, einkum mjólk, með því að stöðva umferð á stofnæðum litháenskra vega með ýmsum landbúnaðartækjum á tímabilinu 21. til 23. maí 2003. Mótmælin leiddu til alvarlegs umferðaröngþveitis á þremum stofnvegum. Mótmælunum lyktaði með samkomulagi á milli mótmælenda og ríkisins þann 23. maí 2003.
Hins vegar voru kærendur ákærðir vegna mótmælanna og dæmdir til 60 daga fangelsisvistar sem var háð skilorði í eitt ár, en á skilorðstíma máttu kærendur ekki fara frá heimili sínu í meira en sjö daga án leyfis stjórnvalda.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur héldu því fram að sakfelling þeirra vegna mótmælanna hefði brotið gegn 11. gr. sáttmálans sem verndar rétt manna til að koma saman og mótmæla á friðsamlegan hátt.
Niðurstaða
Dómstóllinn áréttaði að skerðing á fundafrelsi standist eingöngu 11. gr. sáttmálans eigi hún sér stoð í lögum, stefni að lögmætu markmiði og teljist nauðsynleg í lýðræðissamfélagi. Tekið var fram að refsing kærenda hefði verið í samræmi við landsrétt og stefnt að lögmætu markmiði, en að höfuðmáli skipti hvort refsingin gæti talist nauðsynleg með hliðsjón af því markmiði sem stefnt var að.
Dómstóllinn tók fram að mótmælin hefðu valdið verulegri truflun fyrir umferð. Hins vegar yrðu aðildarríki að sýna talsvert umburðarlyndi gagnvart truflunum vegna mótmæla í því skyni að virða fundafrelsið. Vísað var til þess að kærendur hefðu aflað leyfa til friðsamlegra mótmæla, að ofbeldi hefði ekki verið beitt og að samningaviðræður hefðu staðið yfir á milli kærenda og ríkisins á þessum tíma. Þá hefðu kærendur sýnt sanngirni með því að heimila umferð hópferðabíla og flutningabíla með hættulegan varning framhjá vegartálmum. Lögð var áhersla á að kærendur hefðu verið dæmdir til skilorðsbundinnar fangelsisvistar sem fól þó í sér að þeir gátu ekki farið frá dvalarstað sínum í meira en sjö daga án samþykkis stjórnvalda. Dómstóllinn benti á að samkvæmt þessu byggju kærendur við skert ferðafrelsi í heilt ár.
Með hliðsjón af þessu taldi dómstóllinn að sakfelling og refsing kærenda gæti ekki talist nauðsynleg og að brotið hefði verið gegn 11. gr. sáttmálans
Litháenska ríkinu var gert að greiða kærendum, hverjum fyrir sig, 2000 evrur í miskabætur. Þrír dómarar skiluðu séráliti.
Full & Egal Universal Law Academy