© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Langner gegn Þýskalandi
Dómur frá 17. september 2015
Mál nr. 14464/11
10. gr. Tjáningarfrelsi
Opinberir starfsmenn. Ummæli um vinnuveitanda. Uppsögn.
1. Málsatvik
Kærandi er þýskur ríkisborgari fæddur árið 1955 og búsettur í Pirna. Honum var sagt upp störfum hjá skrifstofu, sem sá um félagslegar íbúðir, eftir að hafa sakað varaborgarstjóra um afskræmingu á réttlætinu, bæði munnlega á opnum fundi og í skriflegum athugasemdum til yfirmanns síns. Ásökun kæranda var fram borin í tengslum við ákvörðun varaborgarstjórans um að láta rífa nokkrar byggingar. Sú ákvörðun hafði verið tekin tveimur árum áður en þessir atburðir gerðust. Kærandi hafði einnig haldið því fram að varaborgarstjórinn hefði reynt með ólögmætum hætti að fá deild kæranda lagða niður.
Kærandi lét reyna á uppsögn sína fyrir þýskum dómstólum. Niðurstaða þeirra var að uppsögnin væri réttmæt þar sem kærandi hefði vegið að æru varaborgarstjórans með alvarlegum hætti.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að uppsögn hans vegna ummæla hans um varaborgarstjórann hefði vegið að tjáningarfrelsi hans, sem varið sé af 10. gr. sáttmálans og það verið skert með ólögmætum hætti.
Niðurstaða
Uppsögn kæranda var talin fela í sér skerðingu á tjáningarfrelsi hans, enda var hún að meginstefnu til byggð á yfirlýsingum hans um varaborgarstjórann. Skerðingin átti sér stoð í lögum, nánar tiltekið 53. kafla kjarasamnings opinberra starfsmanna og 1. kafla laga um ólögmætar uppsagnir. Skerðingin hafi jafnframt stefnt að því lögmæta markmiði að vernda æru annarra.
Dómstóllinn þurfti því að kanna hvort skerðingin á réttindum kæranda væri í samræmi við lögmætt markmið og hvort ástæður að baki henni væru viðeigandi og nægilegar. Við mat á því þurfti að líta til allra aðstæðna málsins, þá sérstaklega af hvaða hvötum kærandi lét ummælin falla, staðreynda í málinu svo og orðalags staðhæfingar kæranda, áhrifa á vinnuveitandann og afleiðinga ummælanna fyrir kæranda.
Hvað varðaði hvatir að baki ummælum kæranda tók dómstóllinn fram að í stað þess að viðra áhyggjur sínar af ákvörðun varaborgarstjórans við borgarstjórann eða saksóknara hafi hann látið ummælin falla á starfsmannafundi tveimur árum síðar. Þýskir dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að staðhæfingu kæranda hafi ekki verið ætlað að svipta hulunni af óásættanlegri ástæðu eða spillingu heldur hafi staðhæfingunni verið beint gegn varaborgarstjóranum í ljósi aðstæðnanna sem upp voru komnar. Mál kæranda var því ekki uppljóstraramál sem ylli því að verja þyrfti kæranda sérstaklega.
Þýskir dómstólar höfðu ítarlega rakið lögmæti ákvörðunar varaborgarstjórans um að láta rífa byggingarnar. Kæranda átti í ljósi stöðu sinnar sem skrifstofustjóri á skrifstofu félagslegra íbúða í borginni að vera það vel ljóst að ákvörðunin var lögmæt. Komst því dómstóllinn að því að kærandi hafi ekki verið í góðri trú um sannanleika ummæla sinna.
Jafnframt átti kæranda í ljósi stöðu sinnar að vera ljóst að staðhæfingar hans voru alvarlegar aðfinnslur. Að mati dómstólsins fólu staðhæfingarnar í sér ærumeiðandi ummæli, sem kærandi hafði ekki dregið til baka, en ekki gagnrýni í almannaþágu. Staðhæfingarnar voru ekki einungis til þess fallnar að skerða æru varaborgarstjórans heldur einnig skaða vinnuumhverfi á skrifstofu félagslegra íbúða. Því til viðbótar voru staðhæfingarnar settar fram við þær aðstæður að líklegt var að þær kæmust til vitundar almennings, en utanaðkomandi aðilar höfðu verið viðstaddir starfsmannafundinn. Að lokum höfðu þýskir dómstólar tekið fram að þrátt fyrir að uppsögn væri alvarlegasta úrræðið sem til greina kæmi þá mátti með réttu ætla að kærandi myndi ekki breyta hegðun sinni fengi hann að halda starfinu.
Að öllu ofansögðu skoðuðu og teknu tillit til þess að þýskir dómstólar höfðu á öllum stigum málsins tekið tillit til tjáningarfrelsis kæranda við matið komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið brotið á réttindum kæranda skv. 10. gr. sáttmálans.
Full & Egal Universal Law Academy