© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Ilbeyi Kemaloglu and Meriye Kemaloglu gegn Tyrklandi
Dómur frá 10. apríl 2012
Mál nr. 19986/06
2. gr. Réttur til lífs
6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi
Jákvæðar skyldur. Vanræksla. Börn. Réttarúrræði.
1. Málsatvik
Kærendur, Ilbeyi Kemaloglu og Meriye Kemaloglu, eru tyrkneskir ríkisborgarar, fædd árin 1965 og 1974 og búsett í Istanbúl. Sjö ára sonur þeirra, A, lést árið 2004 er hann gekk heim úr skóla í miklu óveðri. Skólanum hafði verið lokað snemma þennan dag vegna óveðursins og skólastjórinn hafði ekki gert sérstakar ráðstafanir til að koma börnunum heim. A lagði af stað gangandi heim til sín en heimili hans var í rúmlega 4 km fjarlægð frá skólanum. Þegar hann skilaði sér ekki heim höfðu kærendur samband við lögreglu. Lík A fannst daginn eftir frosið nærri árbakka. Rannsókn leiddi í ljós að skólastjórinn hafði vanrækt að tilkynna rútuþjónustu sveitarfélagsins um að skólanum yrði lokað snemma og aka þyrfti börnum heim fyrr. Honum var í kjölfarið veitt áminning vegna vanrækslu. Í ágúst 2004 stefndu kærendur tyrkneska ríkinu og héldu því fram að sonur þeirra hefði látist vegna vanrækslu yfirvalda og kröfðust miska- og skaðabóta. Umsókn þeirra um gjafsókn vegna fjárhagsástæðna var hafnað. Þann 4. október 2004 gaf saksóknari út ákæru á hendur skólastjóranum, aðstoðarskólastjóra og kennara A þar sem þeim var gefið að sök að hafa brotið af sér í starfi. Dómstóll sýknaði þremenningana með vísan til þess að þeir hefðu ekki getað séð fyrir að vanræksla þeirra myndi leiða til dauða A. Áfrýjunardómstóll felldi dóm sakadóms úr gildi þann 11. nóvember 2010 vegna réttarfarságalla. Þremenningarnir voru sýknaðir á nýjan leik með dómi árið 2011. Málinu var áfrýjað en hafði ekki verið tekið til efnislegrar meðferðar af áfrýjunardómstóli þegar dómur Mannréttindadómstólsins var kveðinn upp.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur héldu því fram að ríkið hefði brotið gegn 2. og 6. gr. sáttmálans með því að tryggja ekki öryggi sonar þeirra og vegna mistaka í saksókn á hendur þeim sem borið höfðu ábyrgð á dauða hans. Þá hefði jafnframt verið brotið gegn rétti þeirra samkvæmt 6. gr. sáttmálans með því að hafna beiðni þeirra um gjafsókn án nokkurs rökstuðnings.
Niðurstaða
Um 2. gr.: Dómstóllinn tók fram að yfirvöld væru ekki skuldbundin til að bregðast við öllum hættum sem steðjað gætu að lífi einstaklinga. Hins vegar væri óumdeilt að koma hefði mátt í veg fyrir dauða A með því að tilkynna akstursþjónustu sveitarfélagsins um lokun skólans vegna veðurs. Tyrknesk yfirvöld höfðu því vanrækt að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að tryggja öryggi Atalay. Hvað varðaði réttarúrræði sem stóðu kærendum til boða þá hafði bágur fjárhagur þeirra hindrað þau í að leita sjálf réttar síns fyrir dómstólum. Ennfremur var þeim neitað um gjafsókn án nokkurs rökstuðnings. Þótt rúm 8 ár væru frá því að atvikið átti sér stað hafði sakamálið enn ekki hlotið efnislega meðferð fyrir áfrýjunardómstóli. Dómstóllinn taldi að tyrkneskir dómstólar hefðu með langri málsmeðferð og með því að meina kærendum um aðgang að dómstólum vegna fjárhags þeirra komið í veg fyrir að kærendur fengnu fullnægjandi úrlausn mála vegna dauða sonar þeirra. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld hefðu brotið gegn rétti kærenda samkvæmt 2. gr. sáttmálans.
Um 6. gr.: Dómstóllinn hafði í sambærilegum málum komist að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn 6. gr. sáttmálans. Í þeim málum hafði umsóknum tyrkneskra ríkisborgara um gjafsókn verið hafnað. Dómstóllinn sá enga ástæðu til að víkja frá fordæmum sínum í þessu máli. Ákvörðun yfirvalda um að hafna beiðni kærenda um gjafsókn án fullnægjandi rökstuðnings leiddi til þess að þau gátu ekki leitað réttar síns fyrir tyrkneskum dómstólum og var með því brotið gegn réttindum þeirra samkvæmt 6. gr. sáttmálans.
Á grundvelli 41. gr. sáttmálans var tyrkneska ríkinu gert að greiða kærendum 50.000 evrur í miskabætur. Ríkinu var að auki gert að greiða kærendum 4.500 evrur vegna málskostnaðar.
Full & Egal Universal Law Academy