© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
López-Guió gegn Slóvakíu
Dómur frá 3. júní 2014
Mál nr. 10280/12
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Haag-samningur um brottnám barna. Málsmeðferð.
1. Málsatvik
Kærandi er spænskur ríkisborgari sem eignaðist barn með slóvakískri konu á Spáni. Þegar barnið var eins árs fór móðir barnsins með það til Slóvakíu. Kærandi höfðaði mál fyrir héraðsdómi Bratislava á grundvelli Haag-samningsins um einkaréttarleg áhrif af brottnámi barna með flutningi milli landa með vísan til þess að móðirin hefði flutt barnið úr landi án heimildar. Þinghald var í málinu í tvígang og mætti réttargæslumaður barnsins í hvorugt skiptið. Í kjölfarið úrskurðaði héraðsdómur að barnið skyldi sent aftur til Spánar til föður síns. Þessi niðurstaða var staðfest á millidómsstigi og Hæstiréttur synjaði um áfrýjun. Móðir barnsins skaut málinu til Stjórnlagadómstóls Slóvakíu án vitneskju föðursins og komst sá dómstóll að þeirri niðurstöðu að sú ákvörðun héraðsdóms að dæma í málinu í fjarveru réttargæslumanns væri brot á réttindum barnsins og var málið tekið fyrir að nýju í héraðsdómi þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að barninu væri fyrir bestu að vera í Slóvakíu. Við áfrýjun var þessi niðurstaða staðfest.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kæran var byggð á því slóvakíska ríkið hefði brugðist skyldum sínum skv. 8 gr. sáttmálans um að vernda friðhelgi fjölskyldunnar með því að grípa inn í meðferð dómsmálsins án þess að hagsmunir allra aðila væru metnir.
Niðurstaða
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að í ljósi þess að kærandi hafði ekki verið aðili að málinu fyrir stjórnlagadómstólnum og ekki fengið tækifæri til þess að vita af þeim málaferlum hafi verið brotið gegn réttindum hans. Alvarleiki brotsins var talin meiri í ljósi þess að þetta var síðasta úrræði kæranda til að fá barn sitt aftur til heimalands síns þar sem önnur úrræði höfðu verið tæmd.
Var þar af leiðandi um brot á 8. gr. að ræða. Kæranda voru dæmdar 19.500 evrur í miskabætur.
Full & Egal Universal Law Academy