© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Matúz gegn Ungverjalandi
Dómur frá 21. október 2014
Mál nr. 73571/10
10. gr. Tjáningarfrelsi
Blaðamenn. Starfsskyldur. Trúnaðarupplýsingar. Efni sem varðar almenning.
1. Málsatvik
Kærandi er ungverskur ríkisborgari fæddur árið 1963. Hann starfaði sem fréttamaður hjá ungverska ríkissjónvarpinu. Árið 2004 var honum sagt upp störfum fyrir að rjúfa trúnað og brjóta þar með trúnaðarákvæði ráðningarsamnings síns með því að gefa út bók þar sem hann sakaði einn af stjórnendum fjölmiðilsins um ritskoðun. Kærandi lét reyna á uppsögn sína fyrir dómstólum þar í landi sem töldu hana lögmæta.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi taldi uppsögn sína hafa falið í sér óréttmæta skerðingu á tjáningarfrelsi og þar með brot á 10. gr. sáttmálans
Niðurstaða
Uppsögn kæranda fól í sér skerðingu á tjáningarfrelsi hans þar sem hún fór fram einungis með vísan til upplýsinga sem komu fram við útgáfu bókar hans en ekki getu hans eða frammistöðu í starfi. Efni bókarinnar átti erindi við almenning. Að teknu tilliti til hlutverks blaðamanna í lýðræðisþjóðfélagi og skyldu þeirra til að taka þátt í og hvetja til gagnrýninnar þjóðfélagsumræðu geta jafn strangar trúnaðarskyldur gilt um þá og aðra borgara. Enn fremur þurfti að meta í máli kæranda samspil hollustu hans við vinnuveitanda sinn og opinbert eðli þess vinnuveitanda. Hefði ungverska ríkið því átt að veita þeim almannahagsmunum sem háttsemi hans tengdist meiri gaum við meðferð málsins. Enn fremur voru nokkrar staðhæfingar fréttamannsins gildisdómar sem ekki eru undirorpnir sönnun með sama hætti og staðhæfingar um staðreyndir.
Þrátt fyrir að birting sumra skjalanna í bókinni hafi verið trúnaðarbrestur bæri að líta til þess að efni skjalanna hafði verið gert almenningi aðgengilegt á netinu fyrir útgáfu bókarinnar. Góð trú fréttamannsins var heldur aldrei dregin í efa við meðferð málsins, því til viðbótar var bókin gefin út eftir að kærandi hafði reynt að kvarta yfir háttseminni til vinnuveitanda síns, án árangurs.
Uppsögn án réttar til uppsagnarfrests var harkalegt úrræði við því broti sem átti sér stað. Ennfremur höfðu dómstólar einungis litið til trúnaðarbrestsins við mat málsins en ekki tekið til skoðunar að kærandi var að beita tjáningarfrelsi sínu í þágu almennings. Ungverskir dómstólar höfðu því brugðist þeirri skyldu sinni að meta hvort efni bókarinnar og tilgangur útgáfu hennar gætu hafa haft áhrif á hvað kæranda gæti talist heimilt í þessu sambandi. Gat skerðingin á tjáningarfrelsi kæranda því ekki talist nauðsynleg í lýðræðissamfélagi og var hún því brot á 10. gr. sáttmálans.
Kæranda voru dæmdar 5000 evrur í miskabætur og 1440 evrur í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy