© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
M.E. gegn Svíþjóð
Dómur frá 26. júní 2014
Mál nr. 71398/12
3. gr. Bann við pyndingum
Hælisleitendur. Hætta á ofsóknum vegna kynhneigðar.
1. Málsatvik
Kærandi er líbýskur ríkisborgari sem hefur verið búsettur í Svíþjóð frá 2010. Hann sótti upphaflega um hæli á þeim grunni að hann óttaðist ofsóknir sökum þátttöku sinnar í ólöglegum vopnaflutningum. Nokkrum mánuðum síðar bætti hann við þeirri málsástæðu að hann væri samkynhneigður og hefði gifst karlmanni. Í ljósi breyttra stjórnmálaaðstæðna í Líbýu sættist kærandi á að hann væri líklega ekki lengur í hættu þar sökum vopnaflutninga. Innflytjendaráð Svíþjóðar efaðist um sannleiksgildi sögu kæranda og sá ekkert því til fyrirstöðu að hann færi aftur til Líbýu og sækti um landvistarleyfi þaðan á grundvelli hjónabands síns. Innflytjendarétturinn hafnaði áfrýjun hans eftir að hafa komist að því að hann þarfnaðist ekki alþjóðlegrar verndar.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi byggði kæru sína á því að hann ætti á hættu ofsóknir færi hann aftur til Líbýu vegna þátttöku í ólöglegum vopnaflutningum og vegna kynhneigðar sinnar.
Niðurstaða
Að því er varðaði þátttöku kæranda í ólöglegum vopnaflutningum komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að sú frásögn væri ótrúverðug og ennfremur hefði hann ekki sýnt fram á raunverulega ógn ef sönn væri. Hvað varðaði kynhneigð hans bæri að líta til þess að þrátt fyrir að sænsk yfirvöld hafi aldrei efast um kynhneigð hans þá hafði honum ekki tekist að sýna fram á atvik með samfeldum og skýrum hætti svo unnt væri að taka afstöðu til yfirlýsingar hans.
Þrátt fyrir að litlar upplýsingar lægju fyrir um aðstöðu samkynhneigðra í Líbýu væru engin gögn til sem sýndu fram á ofsóknir gegn samkynhneigðum eftir að valdatíð Gadhafi leið undir lok árið 2011. Var því ekki sýnt fram á ofsóknir gegn samkynhneigðum í Líbýu. Einnig benti dómstóllinn á að kæranda hafi ekki endanlega verið vísað úr landi heldur honum einungis gert að fara til Líbýu og sækja um landvistarleyfi þaðan á grundvelli hjúskapar síns. Það ferli væri unnt að framkvæma á netinu og taki einungis fjóra mánuði. Því til viðbótar myndi hann þurfa að heimsækja sænskt sendiráð í Egyptalandi, Túnis eða Alsír en ekki var talin hætta á að slík ferð legði kærenda í hættu. Var því ekkert uppi í málinu sem benti til þess að kærandi ætti á hættu að verða fyrir slæmri meðferð eða ofsóknum sökum kynhneigðar sinnar væri hann sendur aftur til Líbýu.
Full & Egal Universal Law Academy