© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Mežnarić gegn Krótatíu
Dómur frá 15. júlí 2005
Mál nr. 71615/01
6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi
Óvilhallur dómstóll. Hæfi dómara.
1. Málsatvik
Kærandi, Mežnarić, er króatískur ríkisborgari, fæddur 1954 og býr í Zagreb.
Þann 10. júlí 1991 var höfðað mál gegn kæranda vegna samningsbrots. Stefnendur höfðu lögmanninn M.V. frá 27. nóvember 1991. Dóttir M.V. tók við málinu þann 27. janúar 1992. Dómur gekk stefnendum í hag og kærandi tapaði málinu.
Kærandi áfrýjaði dómnum til fyrsta stigs áfrýjunardómstóls sem staðfesti dóm undirréttar að hluta. Kærandi áfrýjaði þeim dómi til Hæstaréttar sem vísaði kröfum kæranda frá. Þá lagði kærandi kæru fyrir stjórnlagadómstól vegna málsins en henni var vísað frá dómi þann 18. desember 2000. Þegar honum var birtur úrskurðurinn tók hann eftir því að M.V. var einn þeirra fimm dómara sem kváðu upp úrskurðinn.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi taldi að hann hefði ekki hlotið réttláta málsmeðferð fyrir óháðum dómstóli skv. 1. mgr. 6. gr. sáttmálans þar sem einn dómara stjórnlagadómstólsins í máli hans hafði verið lögmaður gagnaðila hans á fyrri stigum málsins.Niðurstaða
Dómstóllinn taldi að það að einn dómara stjórnlagadómstólsins, og síðar dóttir hans, hefðu farið með málið fyrir gagnaðila kæranda gæfi réttmæta ástæðu til að draga óhlutdrægni dómarans í efa.
Var það því einróma niðurstaða dómstólsins að brotið hefði verið gegn 1. mgr. 6. gr. sáttmálans þar sem kærandi hefði ekki hlotið réttláta málsmeðferð fyrir óvilhöllum dómstól. Þá taldi dómstóllinn ennfremur að sú niðurstaða að um brot væri að ræða fæli í sér fullnægjandi niðurstöðu máls fyrir kæranda skv. 41. gr. sáttmálans. Voru honum dæmdar 1.165 evrur í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy