© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Þjóðernisflokkur Baska – Svæðisfélag Iparralde gegn Frakklandi
Dómur frá 7. júní 2007
Mál nr. 71251/01
10. gr. Tjáningarfrelsi
11. gr. Félagafrelsi
Fjármál stjórnmálaflokka.
1. Málsatvik
Kærandi er svæðisfélag í Þjóðernisflokki Baska (Parti Nationaliste Basque – Organisation Régionale D’Iparralde). Hann er með skrásett aðsetur í Bayonne í Frakklandi.
Samkvæmt stofnskrá kæranda er hann hluti af EAJ-PNB sem er spænskur stjórnmálaflokkur með það markmið að vernda og efla þjóðerniskennd Baska. Í stofnskránni kemur einnig fram að kærandi skuli vinna eftir hugmyndafræði, meginreglum og starfsreglum EAJ-PNB.
Í samræmi við lög frá 1988 um fjármál stjórnmálaflokka stofnaði kærandi félag til að afla fjármuna til stuðnings við starfsemi sína. Átti þetta að gera honum kleift að taka við fjármunum, sérstaklega frá EAJ-PNB. Í september 1998 leitaði kærandi leyfis fyrir starfsemi félagsins en var hafnað með vísan í að lögin frá 1988 legðu bann við að stjórnmálaflokkar tækju við fjármunum frá erlendum aðilum.
Beiðni kæranda um að framangreind ákvörðun yrði endurskoðuð var hafnað. Með dómi stjórnsýsludómstóls þann 8. desember árið 2000 var ákvörðunin staðfest.
2. Meðferð málsins hjá MannréttindadómstólnumKæran
Kærandi taldi synjun á leyfisveitingu til handa félaginu um fjármögnun á þeim grundvelli að meirihluti fjármuna kæmi erlendis frá bryti í bága við tjáningarfrelsi sitt samkvæmt 10. gr. sáttmálans, félagafrelsi sitt samkvæmt 11. gr. og réttinn til frjálsra kosninga samkvæmt 3. gr. samningsviðauka nr. 1.
Niðurstaða
Dómstóllinn taldi synjunina fela í sér takmörkun á réttindum kæranda samkvæmt 11. gr. Kveðið hefði verið á um hana í lögum og hún hefði stefnt að lögmætu markmiði, þ.e. að firra glundroða.
Um nauðsyn takmörkunarinnar taldi dómstóllinn bann við því að stjórnmálaflokkar tækju við fjármunum erlendis frá geta samræmst 11. gr. sáttmálans. Í þessu sambandi benti dómstóllinn á að þrátt fyrir að kærandi gæti ekki tekið við fjármunum frá Þjóðernisflokki Baska þá gæti hann samt sem áður fjármagnað starfsemi sína með fjárframlögum frá meðlimum sínum og öðrum einstaklingum, þar á meðal frá erlendum aðilum. Að auki væri ekkert sem stæði í vegi fyrir því að kærandi tæki við fjármunum frá frönskum stjórnmálaflokkum eða gæti notið góðs af opinberri fjármögnun samkvæmt frönskum lögum. Þrátt fyrir að bann lægi við því að kærandi tæki við fjármunum frá Þjóðernisflokki Baska hefði það ekki óeðlilega mikil áhrif á möguleika kæranda til að stunda stjórnmálastarfsemi sína enda væri aðstaða hans sambærileg aðstæðum annarra smárra stjórnmálaflokka sem einnig skorti fjármuni.
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið í bága við 11. gr. sáttmálans hvort sem hún væri tekin ein sér eða í samhengi við 10. gr. Að mati dómstólsins var ekki ástæða til að meta hvort hún færi í bága við 3. gr. samningsviðauka nr. 1. Einn dómari skilaði sératkvæði.
Full & Egal Universal Law Academy