© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Paudicio gegn Ítalíu
Dómur frá 24. maí 2007
Mál nr. 77606/01
1. gr. 1. viðauka Friðhelgi eignarréttar
Skipulagslöggjöf. Niðurrif mannvirkja.
1. Málsatvik
Kærandi, Camillo Paudicio, er ítalskur ríkisborgari, fæddur árið 1962 og býr í Napólí.
Nágrannar hans reistu hesthús á lóð sinni sem var stærra en þeim var heimilt samkvæmt skipulagi fyrir svæðið. Dómsmál var höfðað gegn nágrönnunum vegna brota á skipulagslöggjöf og þess krafist að hesthúsið yrði rifið að því leyti sem stærð þess fór fram úr heimildum. Dómstóll féllst á þær kröfur. Kæranda tókst hins vegar ekki að fá niðurstöðu dómsins fullnægt.
2. Meðferð málsins hjá MannréttindadómstólnumKæran
Kærandi taldi tjón það sem hann yrði fyrir vegna þess að hann fengi hesthúsið ekki rifið bryti gegn eignarrétti hans sem tryggður væri með 1. gr. 1. viðauka sáttmálans. Hann taldi jafnframt að skortur á úrræðum til þess að fá dómi sakadóms um niðurrif fullnægt væri brot á 1. mgr. 6. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn taldi að engin lagastoð væri fyrir drætti héraðsyfirvalda á því að rífa hesthúsið, hvort sem sá dráttur orsakaðist af viljaleysi eða mistökum af hálfu borgarinnar. Dómstóllinn taldi að brotið hefði verið gegn 1. gr. 1. viðauka, en taldi ekki nauðsynlegt að kanna hvort brotið hefði verið gegn 1. mgr. 6. gr. sáttmálans.
Niðurstaða dómstólsins var samhljóða. Kærandi fékk 5.000 evrur í miskabætur og 3.000 evrur í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy