© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Peter Armstrong gegn Bretlandi
Dómur frá 9. desember 2014
Mál nr. 65282/09
6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi
Sakamál. Kviðdómur. Óhlutdrægur dómstóll.
1. Málsatvik
Kærandi var sakfelldur fyrir morð af kviðdómi. Í kviðdóminum áttu sæti einn lögreglumaður sem kominn var á eftirlaun og annar sem enn starfaði sem slíkur. Báðir höfðu gert dómara grein fyrir þessari aðstöðu sinni. Sá sem kominn var á eftirlaun hafði gert grein fyrir að hann hafi sest í helgan stein fyrir mörgum árum og þekkti ekki nöfn neinna lögreglumanna sem komið hefðu að málinu. Sá sem enn var að störfum sagðist kannast við lögreglumann sem sat aftarlega í dómsalnum. Saksóknari greindi þá frá því að hann væri ekki kallaður til sem vitni í málinu. Verjandi kæranda gerði ekki athugasemd við að þessir menn tæku sæti í kviðdóminum.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi reisti kæru sína á að staða lögreglumanna í kviðdóminum hafi komið í veg fyrir að hann fengi réttláta og óvilhalla meðferð fyrir dómi í skilningi 1. mgr. 6. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn tók fram að kviðdómendur eru taldir vera óhlutdrægir þar til annað er leitt í ljós. Því tók dómstóllinn til skoðunar hvort skipun kviðdómsins hafi farið fram með þeim hætti að ekki væri hægt að efast um óhlutdrægni þeirra. Báðir kviðdómendur vöktu athygli á aðstöðu sinni snemma í ferlinu. Verjanda og saksóknara var boðið að koma að spurningum um tengsl þeirra við lögreglumenn er unnu við málið. Kærandi var einnig viðstaddur og gat komið sínum skoðunum að. Verjandi gat jafnframt kannað tengslin frekar og andmælt áframhaldandi þátttöku lögreglumannanna. Það gerði verjandi þó ekki.
Dómstóllinn tók þá fram að málið væri ekki sambærilegt Hanif og Khan gegn Bretlandi að því leiti að lögreglumaðurinn hér þekkti ekki vitni sem veitti mikilvægan vitnisburð í máli. Kærandi hafði jafnframt ekki reynt að draga sönnunargildi vitnisburðar lögreglumanna í málinu í efa. Hann hafði játað að hafa orðið manni að bana en reiddi sig á að það hafi verið í sjálfsvörn. Ferill málsins var því slíkur að hægt var að treysta óhlutdrægni dómsins.
Var því ekki brotið gegn rétti kæranda samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sáttmálans.
Full & Egal Universal Law Academy