© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Phinikaridou gegn Kýpur
Dómur frá 20. desember 2007
Mál nr. 23890/02
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Börn. Faðernismál. Málshöfðunarfrestur.
1. Málsatvik
Kærandi, Yannoula Phinikaridou, fæddist utan hjónabands árið 1945 á Kýpur. Árið 1997 komst hún að nafni föður síns og höfðaði í kjölfarið faðernismál gegn honum. Málinu var vísað frá með vísan til laga sem kváðu á um að frestur fyrir barn til að höfða faðernismál rynni út þremur árum eftir að barnið yrði lögráða.
2. Meðferð málsins hjá MannréttindadómstólnumKæran
Kærandi taldi málshöfðunarfresti til að höfða faðernismál brjóta gegn friðhelgi einkalífs og fjölskyldulífs hennar sem nyti verndar 8. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn vísaði til fyrri fordæma um að einstaklingar ættu rétt á því að fá mikilvægar upplýsingar um sjálfa sig, þar á meðal upplýsingar um hverjir foreldrar þeirra væru. Málshöfðunarfrestir í faðernismálum voru ekki taldir ósamrýmanlegir 8. gr. sáttmálans í sjálfu sér.
Í málinu væru þessir frestir hins vegar þess eðlis að þeir gerðu einstaklingum, í svipaðri stöðu og kæranda, ómögulegt að staðfesta faðerni sitt. Með þessu væri brotið gegn rétti manna samkvæmt 8. gr. sáttmálans. Kæranda voru dæmdar 6.000 evrur í miskabætur og 2.496 evrur í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy