© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Procedo Capital Corporation gegn Noregi
Dómur frá 24. september 2009
Mál nr. 3338/05
6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi
Sjálfstæður og óvilhallur dómstóll.
1. Málsatvik
Kærandi, Procedo Capital Corporation, er félag með takmarkaða ábyrgð eigenda sinna. Kærandi efaðist um hlutleysi dómstóls á millidómstigi í Noregi eftir að í ljós kom að sérfróður meðdómandi sem sat í dóminum teldist vanhæfur í málaferlum fyrirtækisins og Sundal Collier, norsks verðbréfafyrirtækis.
Sundal Collier höfðaði mál gegn kæranda í október 1998. Fyrirtækið krafðist þess að kærandi borgaði fyrir hlutabréf sem fyrirtækið hafði fest kaup á. Í desember 1999 höfðaði kærandi gagnsök og krafðist skaðabóta vegna þess að upplýsingar og ráðleggingar frá Sundal Collier hefðu valdið tapi fyrirtækisins í hlutabréfakaupunum. Undirréttur í Osló dæmdi Sundal í vil og vísaði kröfu kæranda frá.
Kærandi áfrýjaði málinu til dómstóls á millidómstigi. Sundal Collier krafðist þess þá að krafa fyrirtækisins og gagnkrafa kæranda yrðu aðskildar í málarekstrinum. Á fimmta degi málsmeðferðarinnar, 23. október 2003, viðurkenndi sérfróður meðdómandi sem hafði sérþekkingu á fjármálum að hann hefði tiltekin tengsl við Sundal. Nánar tiltekið var hann einn eigenda ráðgjafafyrirtækis sem hafði tekið að sér endurskoðun fyrir ABG Sundal en það fyrirtæki var móðurfyrirtæki Sundal Collier. Þrátt fyrir að rétturinn teldi að ekkert benti til annars en að dómarinn væri vel hæfur til að komast að hlutlausri niðurstöðu í málinu var fallist á kröfu kæranda um að dómarinn viki sæti. Jafnframt var ákveðið að skilja mismunandi efnisþætti málsins í sundur og að rétturinn myndi fyrst taka afstöðu til kröfu Sundal. Kærandi hélt því þá fram að vegna vanhæfis sérfróða meðdómandans hefði rétturinn í heild verið vanhæfur í málinu og að fella bæri málið niður. Þetta féllst rétturinn ekki á.
Eftir ellefu daga áframhaldandi málsmeðferð og tveggja daga skoðun málsins á eftir ákvað rétturinn að taka málið til dóms og staðfesti að efnisþættir málsins yrðu skildir að. Í janúar 2004 staðfesti dómstóllinn síðan dóm undirréttar og dæmdi kæranda til að borga málskostnað Sundal. Kærandi áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en dómstóllinn neitaði að taka málið til efnismeðferðar en krafa um áfrýjun náði ekki fram að ganga.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að þátttaka sérfróða meðdómandans í fyrsta hluta munnlega málflutningsins á millidómstigi hefði brotið gegn 1. mgr. 6. gr. sáttmálans. Jafnframt taldi kærandi að neitun dómsins um að fella málið niður og taka það á ný til meðferðar fyrir öðruvísi samsettum dómi hefði brotið gegn sama ákvæði.
Niðurstaða
Dómstóllinn taldi að ekkert benti til þess að meðdómsmaðurinn hefði verið hallur gegn kæranda í málinu. Enn fremur taldi dómstóllinn að þótt réttmætt hefði verið að efast um hæfi hans hefðu rökin þar að baki ekki verið sérstaklega veigamikil. Verkefni dómarans hefðu einungis óbeint verið tengd Sundal Collier og einungis falist í tæknilegri ráðgjöf. Engin bein tengsl hefðu verið á milli dómarans og fyrirtækisins og hann hefði ekki haft neina beina hagsmuni af niðurstöðu málsins. Að auki hefði þátttaka hans í málarekstrinum verið lítil meðan á honum hefði staðið og skammt hefði verið liðið á hann þegar hann vék sæti.
Dómstóllinn var ekki sannfærður um að meðdómandinn hefði getað haft áhrif á afstöðu samdómara sinna. Dómstóllinn benti á í þessu samhengi að ákvarðanir réttarins um að meðdómandinn viki sæti í málinu og að skipta málinu upp hefðu verið teknar í fjarveru hans..
Dómstóllinn taldi þess vegna að eðli starfa meðdómandans, hvenær hann tók þátt í meðferð málsins og stutt vera hans í dóminum vektu ekki upp réttmætar efasemdir um hlutdrægni annarra dómara sem sátu í réttinum. Réttinum hefði því ekki verið skylt að fella niður málsmeðferðina og hefja að nýju fyrir öðruvísi samsettum dómstól. Af þessum sökum var ekki fallist á að 1. mgr. 6. gr. sáttmálans hefði verið brotin.
Full & Egal Universal Law Academy