© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Ristamäki og Korvola gegn Finnlandi
Dómur frá 29. október 2013
Mál nr. 66456/09
10. gr. Tjáningarfrelsi
Meiðyrðamál. Fjölmiðlar. Umræða um samfélagsleg málefni.
1. Málsatvik
Kærendur, Juha Ristamäki og Ari Korvola, eru finnskir ríkisborgarar, fæddir 1969 og 1953, og búsettir í Espoo og Helsinki í Finnlandi. Þeir starfa báðir hjá finnskum fjölmiðli, annar sem ritstjóri og hinn sem yfirmaður hans. Árið 2006 birti fjölmiðillinn sjónvarpsþátt um rannsóknir á efnahagsbrotum þar sem skortur á samstarfi lögreglu og skattyfirvalda var gagnrýndur. Í þættinum var minnst á að vegna rannsóknar sinnar hefði lögreglan óskað eftir upplýsingum um hvort tiltekin íþróttamiðstöð hefði verið styrkt af K.U., þjóðþekktum finnskum viðskiptamanni sem sætti á þessum tíma ákæru vegna tiltekinna efnahagsbrota. Í desember 2007 voru kærendur ákærðir fyrir meiðyrði og krafðist K.U. skaðabóta í sama máli. Kærendur báru því við að allar upplýsingar sem fram komu í þættinum hefðu verið sannar. Þeir voru hins vegar sakfelldir fyrir meiðyrði og var þeim meðal annars gert að greiða K.U. skaðabætur. Beiðni kærenda um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar Finnlands var hafnað.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur byggðu á því að með framangreindum dómi hefði verið brotið gegn tjáningarfrelsi þeirra samkvæmt 10. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn tók fram að skerðing á tjáningarfrelsi kærenda hefði verið í samræmi við landsrétt og stefnt að lögmætu markmiði. Lögð var áhersla á að tjáningarfrelsi væri ein af grunnstoðum lýðræðisþjóðfélags og að sérstaklega ríkar ástæður þyrfti til að skerða tjáningarfrelsi fjölmiðla vegna hlutverks þeirra við upplýsingamiðlun í þjóðfélaginu. Hafa yrði í huga að hlutverki fjölmiðla fylgi skyldur og beri þeim að sýna orspori manna tilhlýðilega virðingu.
Dómstóllinn lagði áherslu á að markmið sjónvarpsþáttarins hefði verið að sýna fram á skort á samstarfi á milli lögreglu og skattyfirvalda í tveimur málum, en það málefni varðaði almenning og væri hluti af þjóðfélagsumræðu. Væri óumdeilt að staðhæfing í þættinum um að lögregla hefði óskað upplýsinga um hvort K.U. hefði komið að fjármögnun tiltekinnar íþróttamiðstöðvar ætti við rök að styðjast. Þá var vísað til þess að ekki hefði verið sýnt fram á annað en að kærendur hefðu birt þessi ummæli í góðri trú, enda hefði verið skýrt rétt frá staðreyndum varðandi einstakling sem sætti talsverðri opinberri umræðu vegna saksóknar í málum sem varða efnahagsbrot.
Talið var að finnskir dómstólar hefðu ekki tekið nægilegt tillit til réttar almennings til upplýsinga um atriði sem tengjast finnsku efnahagslífi og lagt of ríka áherslu á æruvernd K.U. Hefði þannig ekki verið rökstutt hvers vegna mikilvægara væri að vernda æru viðkomandi einstaklings en rétt almennings til upplýsinga um mikilvægt þjóðfélagsefni. Ennfremur varð ekki séð að metið hefði verið sérstaklega hvort með dómi væri gengið of langt til að ná því lögmæta markmiði sem að var stefnt.
Samkvæmt þessu var talið að skerðing á tjáningarfrelsi kærenda hefði ekki verið nauðsynleg og að brotið hefði verið gegn 10. gr. sáttmálans.
Kærendum voru dæmdar annars vegar 1.910 evrur og hins vegar 2.330 evrur í skaðabætur, svo og 3.500 evrur sameiginlega í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy