© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Sampaio e Paiva de Melo gegn Portúgal
Dómur frá 23. júlí 2013
Mál nr. 33287/10
10. gr. Tjáningarfrelsi
Meiðyrðamál. Refsing. Opinberar persónur.
1. Málsatvik
Kærandi, Afonso Joaquim Sampaio e Paiva de Melo, er portúgalskur ríkisborgari, fæddur árið 1964. Hann er blaðamaður og fyrrverandi blaðafulltrúi portúgalska landsliðsins í fótbolta. Hann gaf út bók árið 2006 þar sem hann gagnrýndi harðlega formann víðfrægs knattspyrnufélags. Hann nafngreindi formanninn ekki sérstaklega en lýsti honum sem „svörnum óvini“ knattspyrnulandsliðs Portúgal. Þá vísaði hann einnig í málaferli sem vörðuðu formanninn og kallaði hann „Portúgalmeistara í fótboltamálaferlum“. Árið 2009 var kærandi sakfelldur fyrir meiðyrði og dæmdur til greiðslu sektar, svo og til greiðslu skaðabóta til formannsins. Dómurinn var staðfestur af áfrýjunardómstól í febrúar 2010.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi taldi að sakfelling hans fyrir meiðyrði hefði brotið gegn tjáningarfrelsi hans samkvæmt 10. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn áréttaði að réttur til frjálsrar tjáningar samkvæmt 10. gr. sáttmálans væri grundvallarréttur í hverju lýðræðisríki og næði til miðlunar skoðana sem væru til þess fallnar að móðga eða valda deilum. Þá lagði dómstóllinn áherslu á að blaðamenn gegndu mikilvægu hlutverki í lýðræðisþjóðfélagi og yrði að gæta varúðar við skerðingu á tjáningarfrelsi þeirra.
Dómstóllinn tók fram að sú takmörkun á tjáningarfrelsi kæranda sem fólst í sakfellingu hans fyrir meiðyrði hefði átt sér stoð í settum lögum og stefnt að því lögmæta markmiði að vernda rétt annarra einstaklinga. Aftur á móti yrði að skoða vandlega hvort takmörkunin teldist nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi. Vísað var til þess að bók kæranda fjallaði um málefni portúgalska knattspyrnulandsliðsins og varðaði meðal annars stjórnunarhætti í þarlendum knattspyrnufélögum. Lögð var áhersla á að slík umfjöllun ætti erindi til almennings. Jafnframt var vísað til þess að umræddur knattspyrnufélagsformaður væri opinber persóna sem hefði sætt talsverðri umfjöllun í fjölmiðlum vegna þeirra dómsmála sem hann átti aðild að.
Með hliðsjón af aðstæðum taldi dómstóllinn að dómur í málinu vegna þeirra ummæla sem kærandi setti fram í bók sinni hefði gengið lengra en heimilt væri og að tjáningarfrelsi kæranda hefði ekki verið veitt nægjanlegt vægi í því hagsmunamati sem fram fór. Dómstóllinn tók sérstaklega fram að sektargreiðslur í málum af þessu tagi væru til þess fallnar að hafa letjandi áhrif á opinbera umræðu og ættu ekki rétt á sér nema í undantekningartilvikum. Dómurinn taldi því að um brot gegn 10. gr. sáttmálans væri að ræða.
Portúgalska ríkið var dæmt til að greiða kæranda 2.600 evrur í skaðabætur, 3.250 evrur í miskabætur og 2.396 evrur í málskostnað.
Full & Egal Universal Law Academy