© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Satakunnan Markkinapörssi Oy og Satamedia Oy gegn Finnlandi
Dómur frá 21. júlí 2015
Mál nr. 931/13
10. gr. Tjáningarfrelsi
Vinnsla persónuupplýsinga. Upplýsingar um tekjur skattgreiðenda. Birting í þágu fréttamennsku.
1. Málsatvik
Kærendur Satakunnan Markkinapörssi Oy og Satamedia Oy eru hlutafélög sem starfa í bænum Kokemäki í Finnlandi. Félögin gáfu út tímaritið Veropörssi sem fjallaði um skattamál og birti upplýsingar um skattskyldar tekjur og eignir einstaklinga.
Árið 2003 hóf seinni kærandinn, í samstarfi við símafyrirtæki, starfrækslu á SMS-þjónustu þar sem hægt var að óska eftir og fá sendar upplýsingar um tekjur manna með SMS-skilaboðum. Gagnagrunnur með upplýsingum tekjur og eignir 1,2 milljóna manna, hafði verið gerður á grundvelli þeirra upplýsinga sem birtar voru í tímaritinu en þetta var um þriðjungur skattskyldra einstaklinga í Finnlandi.
Í febrúar 2003 höfðaði umboðsmaður um persónuvernd mál fyrir stjórnsýsludómstóli til að fá viðurkennt að vinnsla kærenda á tekjuupplýsingum og umfang hennar samrýmdist ekki lögum. Árið 2005 lagði Persónuverndarstofnun Finnlands bann við vinnslu kærenda á tekjuupplýsingum og dreifingu þeirra með SMS-skilaboðum. Í júni 2012 kvað æðsti stjórnsýsludómstóll Finnlands upp dóm með þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að réttlæta hina umfangsmiklu vinnslu upplýsinga sem fólst í starfrækslu gagnagrunnsins með því að hún væri í þágu fréttamennsku. Um væri að ræða vinnslu kærenda á persónuupplýsingum sem færi í bága við lög þar sem vernd á friðhelgi einkalífs skattgreiðenda væri vægi þyngra en tjáningarfrelsi kærenda. Áður en dómur var kveðinn upp hafði dómstólinn leitað forúrskurðar um málið hjá dómstóli ESB.
Vegna þessarar niðurstöðu lögðu kærendur SMS-þjónustuna niður og eftir 2009 hættu þeir að birta tekjuupplýsingar í tímaritinu.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur töldu að bann finnskra dómstóla við vinnslu á skattaupplýsingum jafnast á við ritskoðun sem bryti gegn 10. gr. sáttmálans þess sem það fæli í sér mismunun þar sem önnur fréttablöð hefðu áfram óhindrað birt slíkar upplýsingar. Þá töldu kærendur brotið gegn réttindum sínum samkvæmt 6. gr. sáttmálans þar sem meðferð máls þeirra fyrir stjórnsýsludómstólum hefði tekið óhóflega langan tíma, eða sex ár og sex mánuði.
Niðurstaða
Mannréttindadómstóllinn benti á að finnski stjórnsýsludómstóllinn hefði litið svo á að birting upplýsinga úr gagnagrunninum gæti ekki fallið undir birtingu í þágu fréttamennsku og að almannahagsmunir krefðust ekki svo víðtækrar birtingar á persónuupplýsingum. Þá hefði finnski dómstóllinn vegið andstæða hagsmuni í málinu, þ.e. tjáningarfrelsi kærenda andspænis friðhelgi einkalífs, og túlkað réttindi kærenda þannig þau þyrfti að takmarka til að vernda einkalíf manna. Væri rökstuðningur dómstólsins ásættanlegur.
Dómstóllinn komst einnig einróma að þeirri niðurstöðu að meðferð málsins fyrir finnskum dómstólum hefði tekið óhæfilega langan tíma og því hefði verið brotið gegn réttindum kærenda samkvæmt 6. gr. sáttmálans.
Full & Egal Universal Law Academy