© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Sigma Radio Television Ltd. gegn Kýpur
Dómur frá 21. júlí 2011
Mál nr. 32181/04 og 25122/05
6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi
10. gr. Tjáningarfrelsi
Stjórnsýsluviðurlög. Réttlát málsmeðferð. Fjölmiðlar. Eftirlit með starfsemi.
1. Málsatvik
Kærandi, Sigma Radio Television Ltd., er fyrirtæki sem skráð er á Kýpur. Það á sjónvarpsstöðina „Sigma TV“ og útvarpsstöðina „Radio Proto“.
Á árunum 2000 til 2002 lagði kýpverska fjölmiðlaeftirlitið sektir á umrædda fjölmiðla vegna 27 mála sem eftirlitið hafði tekið til meðferðar annaðhvort að eigin frumkvæði eða eftir kæru. Málin vörðuðu auglýsingar sem beint var að börnum, lengd auglýsingatíma, auglýsingar í fréttatímum og gamanþáttum, hlutdrægni fréttamanna, sýningar á efni sem ekki þótti við hæfi barna og unglinga og ummæli í skemmtiþætti sem lýstu kynþáttafordómum.
Kærandi skaut ákvörðununum til dómstóla og krafðist ógildingar á þeim. Hann hélt því fram að fjölmiðlaeftirlitið hefði í senn rannsakað málið, borið í því vitni, ákært og dæmt. Einnig hefðu sektirnar runnið í sjóði þess. Málsmeðferðin hefði því ekki verið réttlát. Fjölmiðlaeftirlitið hefði auk þess haft reglusetningarvald og vald til að leggja á refsikennd viðurlög og hefði þannig valdheimildir sem einungis ríkið sjálft gæti farið með. Hæstiréttur Kýpur hafnaði kröfum kæranda.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi hélt því fram að meðferð málsins hjá fjölmiðlaeftirlitinu og niðurstöður þess hefðu brotið gegn réttindum hans samkvæmt 1. mgr. 6. gr. og 10. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Um 6. gr.: Dómstóllinn taldi að sumar þeirra athugasemda sem kæra kæranda byggði á hefðu komið fram of seint undir rekstri málsins en aðrar hefði ekki verið látið á reyna fyrir kýpverskum dómstólum. Þótt samþjöppun verkefna á hendur eins eftirlitsaðila gæfi almennt tilefni til þess að hafa áhyggjur af því á skorti að málsmeðferð væri réttlát hefðu kýpverskir dómstólar tekið þetta álitaefni til skoðunar. Sú skoðun hefði leitt í ljós að málsmeðferðin hefði verið réttlát en dómstólar hefðu ella haft vald til að ógilda ákvarðanir kýpverska fjölmiðlaeftirlitsins. Í ljósi þeirrar endurskoðunar sem fram fór fyrir Hæstarétti Kýpur taldi dómstóllinn að ekki hefði verið brotið gegn 6. gr. sáttmálans.
Um 10. gr.: Dómstóllinn taldi að aðgerðir yfirvalda hefðu verið í samræmi við meðalhóf að teknu tilliti til þeirra markmiða sem bjuggu að baki þeim. Dómstóllinn sá einungis ástæðu til að fjalla efnislega um sekt sem var lögð á kæranda vegna ummæla sem lýstu kynþáttafordómum sem komu fram í skemmtiþætti, en kæran var að öðru leyti ekki tæk til efnismeðferðar. Ekki var talið að yfirvöld á Kýpur hefðu farið út fyrir svigrúm sitt til mats við úrlausn þess hvort sekta bæri kæranda fyrir þau ummæli. Í ljósi þessa hafði ekki verið brotið gegn 10. gr. sáttmálans.
Kærandi byggði kæru sína einnig á 1. gr. 1. viðauka sáttmálans og 14. gr. sáttmálans en kæran þótti ekki tæk til efnismeðferðar að því leyti sem hún laut að þessum ákvæðum.
Full & Egal Universal Law Academy