© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Wirtschafts-Trend Zeitschriften-Verlagsgesellschaft mbH gegn Austurríki
Dómur frá 13. desember 2005
Mál nr. 66298/01 og 15653/02
10. gr. Tjáningarfrelsi
Ummæli um stjórnmálamenn. Myndbirting.
1. Málsatvik
Kærandi, Wirtschafts-Trend Zeitschriften-Verlagsgesellschaft mbH, er eigandi og útgefandi vikuritsins „Profil“.
Í hefti sem kom út 15. júní 1998 birti kærandi grein um R, sem þá var þingmaður, og vinkonu hans, G. Greinin hét „Dagbók á flótta“ og undirfyrirsögn var „Skýrsla. Ýmsar getgátur eru um för R til Brasilíu. Gamalkunnug atburðarás.“ Lýsti greinin flótta parsins frá Austurríki þar sem R var grunaður um ýmis fjársvikabrot. Eftir handtöku R hafði G veitt nokkur viðtöl um atburðina. Greinin vísaði nokkrum sinnum til parsins sem „Bonnie og Clyde“ og birtist jafnframt mynd af G þar sem hún stóð við hlið R.
G kærði kæranda á grundvelli þess að með því að líkja þeim við glæpaparið fræga hefði verið gefið í skyn að hún hefði átt hlutdeild í brotum R. Í febrúar 2000 dæmdi dómstóll kæranda til að greiða 1.453,46 evrur auk málskostnaðar í bætur til G fyrir meiðyrði. Jafnframt var kærandi dæmdur til að birta útdrátt úr dóminum í blaði sínu.
Ári seinna lagði sami dómstóll á varanlegt lögbann við því að kærandi birti myndir af G þar sem þeim R væri líkt við Bonnie og Clyde eða hún bendluð við glæpsamlega hegðun á nokkurn hátt. Kærandi áfrýjaði án árangurs.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi taldi að sakfelling hans í meiðyrðamálinu og lögbann við frekari birtingu efnis brytu gegn tjáningarfrelsi hans skv. 10. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Hvað varðaði sakfellingu kæranda komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að greinin væri ekki til þess fallin að tengja G brotum R. Talið var að í ljósi innihalds greinarinnar og þess kaldhæðnislega stíls sem var á henni mætti hinum venjulega lesanda vera ljóst að „Bonnie og Clyde“ vísaði til pars sem var á flótta. Því hefði kærandi ekki farið út fyrir mörk tilhlýðilegrar blaðamennsku. Dómstóllinn taldi jafnframt að með því að G hefði flúið með R og seinna veitt viðtöl varðandi efnið hefði hún stigið fram í sviðsljósið og þyrfti því að sæta slíkri umfjöllun frekar en aðrir. Auk þess hefði berum orðum verið tekið fram í greininni að G væri ekki grunuð um refsivert athæfi.
Hvað varðaði lögbannið við myndbirtingu komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að þær myndir sem um var rætt veittu engar upplýsingar um einkalíf G og hún hefði ekki verið á móti því að þær væru teknar. Jafnframt hefði ekki verið nein tilvísun til „Bonnie og Clyde“ í samhengi við myndirnar en greinin sem um ræddi var á annarri blaðsíðu. Dómstóllinn komst því að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að halda því fram að lesandi áliti að G hefði verið viðriðin brot R eftir að hafa lesið greinina.
Dómstóllinn taldi að austurrísku dómstólarnir hefðu farið út fyrir svigrúm sitt til mats þegar þeir sakfelldu kæranda á grundvelli og lögðu lögbann á hann enda væru þær aðgerðir ekki nauðsynlegar í lýðræðislegu þjóðfélagi.
Dómstóllinn komst því að þeirri einróma niðurstöðu að brotið hefði verið gegn 10. gr. MSE. Talið var að niðurstaðan sjálf fæli í sér nægar bætur til kæranda hvað varðar miska.
Full & Egal Universal Law Academy