© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Y.Y. gegn Tyrklandi
Dómur frá 10. mars 2015
Mál nr. 14793/08
8.gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Auðkenni og sjálfsmynd. Transfólk. Skilyrði aðgerðar til að leiðrétta kyn. Lagaheimild.
1. Málsatvik
Kærandi, Y.Y., er tyrkneskur ríkisborgari, sem var þegar kæran var lögð fram skráður sem kona í opinberri skráningu. Kærandi óskaði heimildar dómstóls 30. september 2005 til að fá að gangast undir skurðaðgerð til að leiðrétta kyn sitt en hún hafði snemma á ævinni upplifað sig sem karlmann. Dómstóllinn óskaði eftir ýmis konar upplýsingum frá sjúkrahúsi þar sem kærandi hafði hlotið meðferð, svo sem um það hvort kynleiðrétting væri nauðsynleg geðheilsu hans og hvort hann væri fær um að eignast börn. Skýrslur lækna gáfu til kynna að kærandi væri transeinstaklingur og að aðgerð væri heilsu hans til hagsbóta, en hann var ekki talinn ófær um að eignast börn. Beiðni kæranda um leyfi var hafnað með vísan til þess að skilyrði laga þess efnis að viðkomandi væri ófrjór voru ekki uppfyllt.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærandi byggði á því að skilyrði tyrkneskra laga um ófrjósemi til þess að kynleiðréttingaraðgerð gæti farið fram bryti gegn rétti hans til friðhelgi einkalífs samkvæmt 8. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Dómstóllinn vísaði til þess að almennt væri viðurkennt á alþjóðavettvangi að einstaklingar sem fæðast af öðru kyni en þeir upplifa sig séu með sjúkdóm sem réttlæti aðgerð til kynleiðréttingar. Tekið var fram að synjun á beiðni kæranda um leyfi til slíkrar aðgerðar væri byggð á tyrkneskri löggjöf sem setji það skilyrði að viðkomandi geti ekki fjölgað sér, en skilyrðið sé óumdeilanlega ekki uppfyllt í tilviki kæranda. Fallist var á að löggjöfin stefndi sem slík að lögmætu markmiði.
Lögð var áhersla á að málið varðaði frelsi kæranda til að ákveða kyn sitt sem er nátengt rétti hans til að ákveða sjálfsmynd sína. Vikið var að erfiðum aðstæðum transfólks og mikilvægi þess að beita sáttmálanum þannig að hann veitti þeim líkt og öðrum einstaklingum virka vernd. Vísað var til alþjóðlegra samþykkta til stuðnings transfólki og gerða Evrópuráðsins í þeim efnum, auk þess sem tekið var fram að ýmis ríki hefðu breytt löggjöf sinni þannig að skilyrði um ófrjósemi sem forsendu kynleiðréttingar hefðu verið fjarlægð. Að mati dómstólsins fól synjun á beiðni kæranda um viðkomandi aðgerð í sér skerðingu á rétti hans til að ákvarða sjálfsmynd sína. Dómstóllinn taldi ekki skiljanlegt hvers vegna ófrjósemi væri gerð að skilyrði fyrir kynleiðréttingu og tók fram að það væri ómögulegt fyrir kæranda að uppfylla skilyrðið án þess að undirgangast valkvæða ófrjósemisaðgerð. Með hliðsjón af þessu var talið að sú skerðing á einkalífi kæranda sem leiddi af synjun dómstóla gæti ekki talist nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi.
Tyrkneska ríkinu var gert að greiða kæranda 7500 evrur í miskabætur.
Full & Egal Universal Law Academy