© Translations published on
Permission to re-publish this translation has been granted by
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Mennesson og Labassee gegn Frakklandi
Dómur frá 26. júní 2014
Mál nr. 65192/11 & 65941/11
8. gr. Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu
Börn. Staðgöngumæðrun. Lagaleg tengsl barns við foreldri.
1. Málsatvik
Kærendur í fyrra málinu, Dominique og Sylvie Menneson, eru franskir ríkisborgarar fædd árið 1955 og 1965 og eru gift. Dætur þeirra, tvíburarnir, Valentina og Fiorella Mennesson, eru bandarískir ríkisborgarar fæddar árið 2000 eru einnig kærendur. Þau eru öll búsett í Maisons-Alfort í Frakklandi. Kærendur í síðara málinu eru frönsku hjónin Francis og Monique Labassee fædd árin 1950 og 1951 og dóttir þeirra Juliette Labassee sem er bandarískur ríkisborgari fædd árið 2001. Þau eru búsett í Toulouse. Kærendur í báðum málum eiga það sameiginlegt að hafa ekki fengið viðurkennt lagalegt foreldrasamband við börnin sín sem voru öll fædd með aðstoð staðgöngumæðra í Bandaríkjunum. Franska ríkið heldur því fram að samningar um aðstoð staðgöngumæðra séu ólöglegir.
Sökum ófrjósemi beggja kvennanna í málunum sóttu bæði hjónin sér aðstoð staðgöngumæðra í Bandaríkjunum og var fósturvísum frjóvguðum með sæði hvors eiginmanns komið fyrir í legi viðkomandi staðgöngumæðra. Bandarískir dómstólar hafa úrskurðað að hjónin séu löglegir foreldrar barna sinna. Franska ríkið grunaði að leitað hefði verið aðstoðar staðgöngumóður og neitaði því að skrá börnin í Frakklandi. Fór sú synjun alla leið fyrir Hæstarétt Frakklands sem komst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið brotið gegn friðhelgi fjölskyldunnar með synjuninni þar sem börnin væru börn foreldra sinna í Bandaríkjunum og synjun á skráningu í Frakklandi hindri þau ekki í að búa með foreldrum sínum í Frakklandi.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur í báðum málum töldu brotið gegn friðhelgi einkal